Palestínskur drengur við Aðskilnaðarmúrinn á Vesturbakkanum.
(Ljósmynd: Plataforma per l'Expressió i la Promoció d'ALternatives (la P.E.P.A.)

góð byrjun | stjórnsýsla | upplýsingaveitur | menning & menntun
mannréttindahreyfingar >> palestínskar | ísraelskar | fjölþjóðlegar
sniðganga | samstöðufélög | myndir | staðir | íslenskir vefir | annað

 


Palestína og Sameinuðu þjóðirnar

Sendinefnd Palestínu hjá Sameinuðu þjóðunum
Frelsissamtök Palestínu (PLO) hafa áheyrnarfulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum og er þetta vefur á vegum palestínsku sendinefndarinnar. Öflugur vefur sem inniheldur m.a. upplýsingar um PLO, palestínsku heimastjórnina, sögu svæðisins, friðarferlið, samþykktir S.þ. og lista yfir sendiráð Palestínu í ríkjum víða um heim.

Question of Palestine
Sérstakur vefur S.þ. tileinkaður Palestínu. Inniheldur mikið magn upplýsinga um sögu svæðisins, réttindi flóttamanna, samþykktir SÞ, kort, skjöl og samninga.

UN Office for the Coordination of Humanitarian Affairs - Humanitarian Information in the occupied Palestinian Territory (OCHA – oPt)
Deild á vegum Sameinuðu þjóðanna sem starfar við mannúðarstörf og eftirlit á herteknu svæðunum í Palestínu. Mjög innihaldsríkur vefur sem inniheldur m.a. áreiðanleg landakort, skýrslur og ýmsar upplýsingar um mannréttindamál. Hér má finna ýtarlegar upplýsingar og góð kort er snúa að Aðskilnaðarmúrnum í Palestínu.

United Nations Information System on the Question of Palestine (UNISPAL)
United Nations Information System on the Question of Palestine (UNISPAL) heldur úti gagnagrunni með skýrslum, samþykktum og rannsóknum á vegum stofnana Sameinuðu þjóðanna

United Nations Relief and Works Agency for Palestine Refugees in the Near East (UNRWA)
United Nations Relief and Works Agency for Palestine Refugees in the Near East (UNRWA). Góður vefur um stöðu og sögu palestínskra flóttamanna. Inniheldur m.a. ýmsar tölfræðilegar upplýsingar, myndir og kort af flóttamannabúðum Palestínumanna.

The United Nations Development Programme / Programme of Assistance to the Palestinian People (UNDP/PAPP)
The United Nations Development Programme / Programme of Assistance to the Palestinian People (UNDP/PAPP) hafa starfað á Vesturbakkanum og Gaza í yfir 20 ár. Verkefnin reyna að stuðla að betra lífi fyrir íbúa svæðisins með ýmsu móti.

Office of the Special Coordinator in the Occupied Territories (UNSCO)
Office of the Special Coordinator in the Occupied Territories (UNSCO), sett á fót árið 1994 af aðalritara S.þ. í þeim tilgangi að halda utan um verkefni stofnunarinnar á herteknu svæðunum í Palestínu.

Global NGO Network on the Question of Palestine
Committee on the Exercise of the Inalienable Rights of the Palestinian People sem Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna setti á fót heldur úti neti yfir óháðar hreyfingar sem styðja við réttindabaráttu Palestínumanna. Global NGO Network stendur m.a. fyrir ráðstefnum og sérstökum samstöðudegi hjá S.þ. þann 29. nóvember ár hvert, en þann dag samþykktu S.þ. skiptingu Palestínu í ríki Gyðinga og Araba.


Palestínskar upplýsingaveitur

The Electronic Intifada
Margverðlaunaður vefur sem inniheldur hafsjó af upplýsingum og fréttaskýringar á sviði palestínskra stjórnmála, mannréttinda- og menningarmála. Leggur áherslu á að berjast gegn röngum fréttaflutningi af átökunum fyrir botni miðjarðarhafs og gefa almenningi á Vesturlöndum kost á að fá annað sjónarhorn af Palestínu og Palestínumönnum en við fáum dags daglega í stærstu fjölmiðlum. Ritstjórnin hefur aðsetur í Chicago í Bandaríkjunum, en er af palestínskum uppruna og lýsir síðunni sem “leiðandi palestínskum miðli”. Pennar víða að úr veröldinni leggja til efni. Skráið ykkur endilega á póstlista EI ef þið viljið fylgjast með framvindu mála í Palestínu og Ísrael.

Palestinian Academic Society for the Study of International Affairs (PASSIA)
Samtök með aðsetur í Jerúsalem sem vinna að því að miðla og afla upplýsinga um Palestínu og Palestínumenn með rannsóknum, umræðum og útgáfu. Þessi vel uppsetti og greinargóði vefur inniheldur m.a. ýmsar grunnupplýsingar um Palestínu, palestínska flóttamenn, ísraelska landnámsmen og Jerúsalem. Þar má einnig finna samþykktir og samninga, kort, myndefni, greinar og upplýsingar um námskeið og ráðstefnur PASSIA.

Palestine Monitor
Afar góð inngangssíða að efni tengdu Palestínu og Ísrael. Palestine Monitor er rekin af Palsestinian NGO Networks sem tengir saman starfsemi ýmissa samtaka í Palestínu sem rekin eru óháð yfirvöldum (e. „Non-Governmental Organizations“) m.a. á sviði mannréttinda, umhverfisverndar og heilsugæslu. Fyrir þá sem ekki þekkja mikið til deilunnar milli Palestínumanna og Ísraela má benda á liðinn 'Fact Sheets' á upphafssíðunni.

Jerusalemites
Innihaldsríkurvefur um sögu og menningu Palestínu með kortum, skjölum, myndum og frásögum. Eins og nafnið gefur til kynna skipar Jerúsalem, höfuðborg Palestínu, sérstakan sess á vefnum. Vefurinn er rekin af The Jerusalem Forum sem samanstendur af palestínskum einstaklingum og samtökum sem hafa það m.a. að markmiði að safna saman og miðla trúverðugum upplýsingum um palestínsku þjóðina og tengsl hennar við land sitt.

The Union of Palestinan Medical Relief Commities (UPMRC)
Samtökin UPMRC voru stofnuð árið 1979 af palestínskum læknum til að efla heilsugæslu á herteknum svæðunum. Þau eru óháð yfirvöldum og ekki rekin í gróðaskyni. Á heimasíðu þeirra má sjá dæmi um hrikalega aðför hernámsliðs Ísraela gagnvart Palestínumönnum í máli, myndum og tölfræðilegum upplýsingum. Meðal tölfræðilegra upplýsinga sem hér eru að finna er hve oft, hvenær og hvar Ísraelar hafa ráðist á sjúkrahús, heilsugæslustöðvar, sjúkrabíla, lækna og sjúkraflutningamenn.

Zajel - The Palestinian Media Unit
Upplýsinga- og fréttavefur á vegum Zajel Youth Exchange Program sem er rekið af einum stærsta háskóla Palestínu, An-Najah National University í Nablus. Hefur það að markmiði að miðla upplýsingum um sögu og menningu Palestínu og flytja fréttir frá svæðinu.

Palestine Media Watch
Síða sem tekur fyrir hlutdræga og ranga umfjöllun fjölmiðla af málefnum Ísraels og Palestínu. Palestine Media Watch er með höfuðstöðvar sínar í Bandaríkjunum og heldur úti öflugri fjölmiðlavakt þar í landi. Síðan inniheldur einnig mikið af upplýsingum sem tengjast almennri fjölmiðlaumfjöllun um átökin í Mið-Austurlöndum.

Al-Aqsa Intifada
Vefur tileinkaður seinni Intifada uppreisn Palestínumanna, oft kölluð Al-Aqsa Intifada. Inniheldur m.a. fréttir, ljósmyndir, teiknimyndir, frásagnir fólks í Palestínu og greinar eftir ýmissa höfunda.

Free Palestine
Vefur sem inniheldur ýmsar upplýsingar um Palestínu og mannréttindabrotin sem þar eiga sér stað. Mælum með liðnum “20ways to help Palestine”.

The Palestinian Environmental NGOs Network (PENGON)
Samstarfsnet palestínskra samtaka sem vinna að umhverfisvernd. Hér má finna plaköt, myndir og upplýsingar. PENGON heldur utan um samstarf grasrótahreyfinga gegn Aðskilnaðarmúrnum, The Anti-Aparthed Wall Campagin (www.stopthewall.org), sem hefur mikil áhrif á umhverfi og náttúru Palestínu.

Campaign to Free Marwan Barghouti
Átak til frelsunar Marwan Barghouti sem situr í ísraelsku fangelsi. Einn af vinsælustu leiðtogum Palestínumanna á herteknu svæðunum og meðlimur í Fatah hreyfingunni. Hugðist bjóða sig fram sem óháður frambjóðandi í palestínsku forsetakosningunum 2005 og var af mörgum talin sigurstranglegur, en hætti við og kaus að styðja frambjóðenda Fatah, Mahmoud Abbas. Innihaldsríkur vefur.

Orient House
Hús í Jerúsalem sem lengi hefur verið misðtöð stjórnmálastarfsemi Palestínumanna í borginni. Hefur oft verið lokað af ísraelska hernámsliðinu. Vefurinn inniheldur m.a. ágrip af sögu Orient House.

Palestine Net
Upplýsingabanki um Palestínu og palestínskar vefsíður. Inniheldur flokka á borð við „fréttir og fjölmiðlar“, „ferðalög í Palestínu“, „viðskipti og efnahagur“ og „pólitík og Palestína“.


Aðrar upplýsingaveitur

Alternative Information Center
Samtök rekin af Palestínumönnum og Ísraelum með það að markmiði að miðla upplýsingum um samfélög Palestínumanna og Ísraela og átökin milli þjóðanna. Þau reyna einnig að stuðla að samvinnu milli þjóðanna tveggja á grundvelli jafnréttis og samstöðu. Samtökin hafa aðsetur í Jerúsalem og Betlehem og inniheldur heimasíðan m.a. fréttir, greinar og ályktanir víða að.

Israel-Palestine Center for Research and Information
Miðstöð á vegum Ísraelsmanna og Palestínumanna sem hefur það að markmiði að finna lausnir á deilum þjóðanna. Inniheldur ýmsar rannsóknir og greinar um Jerúsalem, flóttamenn, landnema og friðarferlið.

Bitter Lemons
Vefsíða sem Ghassan Khatib, Palestínumaður sem lengi hefur barist fyrir mannréttindum, og Yossi Alpher, Ísraelsmaður sem áður starfaði fyrir ísraelsku leyniþjónustuna Mossad, halda úti. Uppfærð reglulega og reynir að kynna fyrir lesendum viðhorf bæði Palestínumanna og Ísraela til ýmissa málefna.

Locater - This.is/thewall og This.is/jenin
Stórmerkilegur og flottur vefur sem innheldur m.a. sérvefina “this.is/thewall” og “this.is/jenin” sem gefur okkur innsýn í líf fólks við Aðskilnaðarmúrinn og í Jenín. Mikið safn góðra ljósmynda, kort og frásögur fólks í hljóði og mynd allt sett fram á skemmtilegan og frumlegan máta. Vefurinn er settur saman af sænska listamanninum Cecilia Parsberg og er á ensku, sænsku og spænsku. Mælum með!

Israeli-Palestinian ProCon
Athyglisverður vefur sem tekur fyrir helstu deilumál Ísraela og Palestínumanna og ber saman rök beggja aðila, álit fræðimanna og heimildir. Eru með sérstakt stjörnukerfi sem á að auðvelda lesendanum að meta áreiðanleika heimildarinnar.

The Origin of the Palestine-Israel Conflict
Þriðja útgáfa bókar sem rekur átökin í Palestínu/Ísrael og er gefinn út af samtökunum Jews for Justice in the Middle East. Hún er fáanleg hér, m.a. í PDF prentvænni útgáfu. Mjög góð lesning fyrir þá sem vilja fræðast meira um sögu svæðisins, zíonima, skiptingu Palestínu og uppreisnir Palestínumanna.

International Campaign for Justice for the Victims of Sabra & Shatila
Vefur settur upp í tilefni af málshöfðun á hendur Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, fyrir belgískum dómstólum. Inniheldur m.a. skjöl og framburð vitna í tengslum við fjöldamorðin í flóttamannabúðunum Sabra og Shatila og málshöfðunina á hendur Sharon fyrir fjöldamorð og glæpi gegn mannkyninu.

Middle East Research and Information Project (MERIP)
Middle East Research and Information Project eru óháð bandarísk samtök sem gefa reglulega út rit um Mið-Austurlönd, þar sem eitthvert land eða málefni er tekið fyrir. Hafa gefið út heilmikið efni um Palestínu, og það má finna margvíslegar upplýsingar á þessum vef.

If Americans Knew
Athyglisverður vefur sem tekur fyrir samband Bandaríkjanna og Ísrael. Inniheldur athyglisverðar upplýsingar um fjár- og vopnastuðning Bandaríkjanna við Ísrael og hernám þeirra í Palestínu. Einnig má finna upplýsingar um samþykktir S.þ. gagnvart framferði Ísraela, húseyðileggingar, sögu svæðisins og annað í máli, myndum og gröfum.

Search For Justice and Equality in Palestine/Israel
Bandarísk samtök stofnuð árið 1972 til að vinna að réttlátum frið milli Ísraela og Palestínumanna. Þau leitast m.a. við að bæta umfjöllun amerískra fjölmiðla frá atökunum í Ísrael og Palestínu.

Concert 4 Palestine
Átak sem miðar að því að setja upp alþjóðlega stórtónleika fyrir mannréttindum Palestínumanna. Inniheldur þó nokkuð af haldgóðum upplýsingum um málefni Palestínu og Ísraels auk athyglisverða hluta á borð við samanburð á ummælum þekktra poppara um mannréttindi við það sem er að gerast í Palestínu í dag. Hér geturðu líka sent Bono, söngspíru U2, áskorun um að beita sér í málinu.

Research Guide to the Palestinian-Israeli Conflict
Flokkuð samantekt yfir upplýsingar um Palestínudeiluna á vefnum. Vísar í greinar á öðrum vefsíðum og innheldur þónokkuð af beinum tilvitnunum.

European Institute for Research on Mediterranean and Euro-Arab Cooperation
Víðamikill gagnagrunnur um Mið-Austurlönd sem komið var á fót með stuðningi Evrópusambandsins. Hér er hægt að leita að upplýsingum um menn og málefni með auðveldum hætti og kynna sér samband ESB við Ísrael og Palestínu.

Zionism in the Age of the Dictators
Ritgerð Lenni Brenner um meint tengsl zíonisma og nasisma. Inniheldur m.a. kafla um meint samband Stern hópsins, sem barðist gegn Bretum og Palestínumönnum í Palestínu fyrir stofnun Ísraelsríkis, við Þýskaland nasismans. Grein hans, The Iron Wall, um svipað efni má finna hér; www.marxists.de/middleast/ironwall

Playgrounds for Palestine
Samtök sem hafa það að markmiði að safna fé fyrir leikvelli í Palestínu. Hafa m.a. komið upp leikvöllum í Gaza og Bethlehem.

BUSTAN
Samtök Gyðinga og Araba sem starfa á ýmsum sviðum (m.a. arkitektar og bændur) sem beita sér með beinum stuðningsaðgerðum og verkefnum fyrir umhverfisvernd, mannréttinum og félagslegum réttindum í Palestínu og Ísrael.

The Peace Cycle
Hjólað fyrir mannréttindum í Palestínu. Hjólað í gegnum Evrópu til Jerúsalem til að vekja athygli á hernámi Ísraela í Palestínu og samþykktum Sameinuðu þjóðanna og sýna íbúum Palestínu samstöðu.

Middle East Activst
Bandarískur vefur með margvíslegum upplýsingum um Palestínu og Ísrael sem ætlað er að gagnast þeim sem vilja berjast fyrir mannréttindum á svæðinu.

Z Net - A community of people committed to social change
Aðstandendur Z Magazine halda úti þessari þrusu vefsíðu. Hér má finna greinar um Palestínu og Ísrael frá höfundum á borð við Noam Chomsky, John Pilger og Edward Said. Undir efnisflokknum "Mideast", sem fá má fram með því að fara í "search" á forsíðu og þaðan í "select a topic", má finna mikið af greinum um Palestínu. Einnig er hægt að fá fram greinar eftir höfundum.

Wikipedia
Alfræðibók á netinu með ókeypis aðgangi, skrifuð af lesendunum sjálfum. Mikið safn greina um málefni Palestínu og Ísrael - misgóðar þó.


Alþjóðlegar fréttastofur og fjölmiðlar

The Guardian
Breska dagblaðið The Guardian heldur úti innihaldsríkum sérvef um um Ísrael og Palestínu. Inniheldur m.a. nýjar fréttir, góðar greinar um menn og málefni, skýringarmyndir og fleira.

BBC – In Depth: Israel & the Palestinians
Gagnabanki BBC um átökin í Ísrael og Palestínu. Hér má finna mikið magn texta ásamt mynd- og hljóðupptökum um sögu svæðisins og málefni líðandi stundar.

CNN - Mideast: Land of Conflict
Sérvefur CNN um málefni Palestínu og Ísraels. Farið er yfir sögu svæðisins í máli og skýringarmyndum, feril nokkura lykilmanna í átökunum í Mið-Austurlöndum og atriði á borð við flóttamenn og landsetumenn.

Al-Jazeera - Palestine: The People and the Land
Útbreiddasta sjónvarpsstöð arabaheimsins með aðsetur í Persaflóaríkinu Quatar. Hefur vakið mikla athygli fyrir umfjöllun sína af arabískum stjórnmálum, íhlutun Bandaríkjanna í arabaheiminum og fréttum frá átökunum í Palestínu, Írak og Afganistan. Rekur öflugt vefrit með fréttum frá Palestínu og víðar, en hér vísum við beint í sérvefinn "Palestine: The People and the Land".

The International Middle East Media Center (IMEMC)
Miðstöð sem hefur það að markmiði að flytja fréttir frá Palestínu og Ísrael.


 

Palestínskar fréttastofur og fjölmiðlar

The Palestine Chronicle
Palestínskt vefrit sem hefur það m.a. að markmiði að færa Vesturlandabúum aðrar fréttir frá Palestínu en við erum vön að sjá í stærstu fjölmiðlum. Meðal heiðursmeðlima í ritstjórn eru Dr. Hanan Ashrawi og Dr. Noam Chomsky. Meðal efnisliða eru fréttir, listir og menning og viðskipti.

The Jerusalem Times
Flott palestínskt vefrit á ensku með nýjum fréttum frá Palestínu. Meðal efnisliða eru listir og menning, viðskipti og íþróttir.

Palestine Report
Tímarit á vegum Jerusalem Media and Communication Center. Stofnað árið 1988 af palestínskum blaðamönnum til að miðla upplýsingum og fréttum frá herteknu svæðunum í Palestínu. Aðgengilegur vefur með upplýsingum um ísraelskt landnám, flóttamenn, palestínska pólitík og lífið undir hernámi.

Independent Media Center Palestine
Palestínska útgáfan af Independent Media Center sem er net rótækra vefrita með starfsemi í mörgum löndum Evrópu, Ameríku, Ástralíu og víðar. Vefritið er gefið út á ensku og arabísku – en er því miður ekki nógu oft uppfært og það sem alvarlegra er oft orðið uppvíst að hatursáróðri og fordómum gagnvart Gyðingum.

WAFA - Palestine News Agency
Opinber fréttastofa Heimastjórnar Palestínumanna. Langt í frá öflug síða, en lengi hafa verið uppi áform um að bæta úr því.

Palstinian National Information Centre
Upplýsingamiðstöð palestínsku heimastjórnarinnar rekin af The State Information Service (SIS). Ekki mjög aðgengileg síða og upplýsingar af skornum skammti. SIS recur einnig fréttaþjónustuna International Press Center (www.ipc.gov.ps, sjá hér að neðan).

Palestinian International Press Centre
Fréttamiðstöð palestínsku heimastjórnarinnar rekin af the State Information Service (SIS). Inniheldur m.a. fréttatilkynningar, tölfræði upplýsingar og þó nokkuð safn ljósmynda (þó ekki í prenthæfum gæðum fyrir fjölmiðla). Langt í frá öflugur vefur, en þó oft með nýjar fréttir og tölur. Vefurinn er á ensku, arabísku og frönsku.

Palestine News Network
Palestínsk fréttamiðstöð með fréttaþjónustu á ensku, arabísku og hebresku.

Palestine Media Center (PMC)
Palestínsk upplýsingamiðstöð staðsett í Jerúsalem. Yfirlýst óháð stjórnvöldum og stjórnmálaflokkum – en starfar þó í samvinnu við palestínsku heimastjórnina. Hefur það m.a. að markmiði að birta upplýsingar, skjöl og kort og þjónusta innlenda og erlenda blaðamenn sem heimsækja Palestínu.

Al Quds
Eitt af tveim stærstu dagblöðum Palestínu. Vefurinn aðeins á arabísku.

Al Ayyam
Eitt af tveim stærstu dagblöðum Palestínu. Vefurinn er aðeins á arabísku.

Al Hayat Al Jadedah
Palestínskt dagblað. Vefurinn er aðeins á arabísku.


Ísraelskar fréttastofur og fjölmiðlar

Ha'aretz
Eitt stærsta og elsta dagblað Ísraels með enska vef-útgáfu. Er á vinstri kannti ísraelskra stjórnmála og sumir vilja líkja því við hið breska The Guardian. Birtir oft góðar greinar um afleiðingar hernámsins í Palestínu. Vefurinn birtir nýjustu fréttir frá Ísrael og Palestínu – auk lengri greina.

The Jerusalem Post
Vef-útgáfa Jerusalem Post, sem er stórt ísraelskt dagblað gefið út á ensku. Á hægri kannti ísraelskra stjórnmála og gagnrýnir sjaldan mannréttindabrot Ísraela í Palestínu.

Independent Media Center-Israel
Ísraelska útgáfan af Independent Media Center sem er net rótækra vefrita með starfsemi í mörgum löndum Evrópu, Ameríku, Ástralíu og víðar. Ísraelska vefritið er gefið út á ensku, hebresku og arabísku frá Tel Aviv. Hér er hægt að nálgast ýmsar fréttir sem maður sér ekki annarstaðar.

The Other Israel
Ísraelskt tímarit friðarsinna. Vefurinn er ljótur, en inniheldur oft athyglisverðar greinar og um málefni líðandi stundar í Ísrael og Palestínu.


Palestínskir vefir sem sérhæfa sig í sögu Palestínu

50 Years of Nakba in Palestine
Áhrifarík og flott síða sem segir sögu þeirra Palestínumanna sem hraktir voru frá heimilum sínum eða flúðu heimaland sitt við stofnun Ísraels árið 1948. Palestínumenn nota arabíska orðið Nakba, sem þýða má sem „hörmungarnar“, yfir þessa atburði. Síðan inniheldur m.a. myndir, sögur fórnarlamba og lista yfir palestínskar byggðir sem Ísraelsmenn lögðu í rúst í þjóðernishreinsunum. Síðan er rekin af Khalil Sakakini Cultural Center sem starfar á Vesturbakkanum og Gaza.

Palestine Rembembered
Efnismikil síða tileinkuð sögu Palestínu og örlögum palestínskra flóttamanna. Inniheldur m.a. myndir, frásagnir flóttamanna, kort, ýtarlegar upplýsingar um byggðir Palestínumanna (sem í hundraðatali hafa verið lagðar í rúst) og landnámsbyggðir Gyðinga (sem sumar hafa verið byggðar á rústum palestínskra þorpa). Hér má finna athyglisverða liði á borð við “The Conflict For Beginners”, “Zionism 101” og “Refugees 101”.

Deir Yassin Remembered
Síða rekin af alþjóðlegu samtökunum Deir Yassin Rembembered sem bæði Gyðingar, Arabar og aðrir veita forystu. Síðan tileinkuð palestínskum flóttamönnum og er heiti hennar er dregið af einu þekktasta fjöldamorði zíonista í Palestínu þar sem skæruliðasveitir Irgun samtakana, síðar hluti af Ísraelska hernum, myrtu um 100 íbúa palestínska bæjarins Deir Yassin árið 1948. Vel uppsett síða sem sýnir lesandanum í máli myndum áhrif þjóðarhreinsanna í Palestínu/Ísrael.

Palestine History
Stórgóð síða sem segir sögu Palestínu í máli, myndum, hljóði og tímalínum. Hérna geturðu m.a. hlustað á þjóðsöng Palestínumanna, lesið söguleg skjöl er varða málefni Palestínu, nálgast upplýsingar um helstu forystumenn Palestínumanna og Ísraela, stríð araba og Ísraela og Intifada uppreisnirnar. Ritstjórinn er ættaður frá Gaza í Palestínu, en fæddur og uppalin í Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum.

Palestine Calander
Dagatal yfir sögulegar dagsetningar í sögu palestínsku þjóðarinnar. Getur verið gott verkfæri til að minna á samþykktir Sameinuðu þjóðanna er varða Palestínu eða til að vekja athygli á þeim órétti sem Palestínumenn hafa verið beittir í gegnum tíðina – t.d. með greinarskrifum í dagblöð á sömu dagsetningu og viðkomandi ályktun S.þ. eða ákveðinn atburður átti sér stað. Hér er líka hægt að kaupa dagatöl með verkum frá palestínskum listamönnum.


 


electronic intifada

This webpage uses Javascript to display some content.

Please enable Javascript in your browser and reload this page.

hlekkir | ábendingar

Eru eitthvað af hlekkjunum óvirkir? Veist þú um góða vefsíðu fyrir hlekkjasafn Palestina.is? Sendu okkur endilega ábendingar á: palestina@palestina.is.

auglýsing



WWW Palestina.is

Google
© Félagið Ísland-Palestína 2007 - palestina@palestina.is