Sniðgöngum ísraelskar vörur
Bojkott Israel (NO)
Norsk samtök sem halda úti þessum góða vef – á ensku, arabísku og norsku – sem hvetur almenning til að sniðganga ísraelskar vörur. Inniheldur m.a. lista yfir vörutegundir, spurt & svarað lið og upplýsingar um árangur sniðgönguátaksins í Noregi.
Bojkotta Israel (SE)
Sænsk samtök með vef á sænsku og ensku. Skemmtilega sett upp síða þar sem m.a. má finna rök fyrir sniðgöngu á Ísrael, vörulista og hvernig sniðgönguátakið hefur gengið í Svíþjóð.
Boykot Israel (DK)
Dönsk samtök fyrir sniðgöngu á ísraelskum vörum. Vefurinn er að hluta á ensku.
BIG Campaign (UK)
Boycott Israeli Goods (BIG) er breskt átak og síðan inniheldur nytsamlegar upplýsingar og tól fyrir alla sem vilja sniðganga ísraelskar vörur. Hér má m.a. finna bæklingar, myndir, netborða, lista yfir vörur og upplýsingar um hvernig sniðganga má Ísrael á fleiri sviðum.
Bocyott Israel to end the Military Occupation of Palestine (UK)
Góð samantekt af félögum, vefsíðum og greinum sem tengist sniðgöngu á ísraelskum vörum.
Boycott Israeli Goods (USA)
Bandarískur vefur sem hefur það að markmiði að upplýsa almenning þar í landi og annarstaðar um grimmdarverk Ísraela í Palestínu og fá fólk til að sniðganga ísraelskar vörur á meðan landið þverbrýtur alþjóðalög og samþykktir S.þ. Síðan er nokkuð ruglingsleg en inniheldur þó upplýsingar um ísraelskar vörur og alþjóðleg fyrirtæki sem styðja við bakið á Ísraelsstjórn.
Boycott Israeli Apartheid (ISR/PAL)
Undirskriftarlisti á vegum Palestínumanna og Ísrael fyrir sniðgöngu á ísraelskum vörum.
Önnur sniðgönguátök
Stop Caterpillar (USA)
Caterpillar er ekki ísraelskt merki – en vegna þess að þessi bandaríski framleiðandi sér ísraelska hernum fyrir jarðýtum og gröfum notaðar til að eyðileggja heimili Palestínumanna hefur verið hrundið af stað alþjóðlegu átaki til að sniðganga vörur frá Caterpillar.
|