Palestínskur drengur við Aðskilnaðarmúrinn á Vesturbakkanum.
(Ljósmynd: Plataforma per l'Expressió i la Promoció d'ALternatives (la P.E.P.A.)

góð byrjun | stjórnsýsla | upplýsingaveitur | menning & menntun
mannréttindahreyfingar >> palestínskar | ísraelskar | fjölþjóðlegar
sniðganga | samstöðufélög | myndir | staðir | íslenskir vefir | annað

 


Palestínskar mannréttindarhreyfingar og samtök

The Palestinian Initiative for the Promotion of Global Dialogue & Democracy (MIFTAH)
Samtök sem berjast fyrir lýðræði, mannréttindum og málfrelsi í Palestínu. Reka mjög góða upplýsingasíðu sem inniheldur m.a. nýjar fréttir, fréttatilkynningar, söguleg skjöl og reglulega pistla frá Hanan Ashrawi, einni helstu baráttukonu Palestínumanna.

Palestinian Centre for Human Rights (PCHR)
Palestínsk mannréttindasamtök með aðsetur á Gaza ströndinni. Vinnur að framgangi mannréttinda og lýðræði í Palestínu og er meðlimur í International Commission of Jurists, the Fédération Internationale des Ligues des Droits de l'Homme (FIDH) og the Euro-Mediterranean Human Rights Network. Gegnir einnig ráðgjafahlutverki fyrir the Economic and Social Council (ECOSOC) of the United Nations.

Stop the Wall
Frábær vefur the Palestinian Environmental NGOs Network (PENGON) tileinkaður Aðskilnaðarmúrinn í Palestínu. Staðreyndir, alþjóðalög, frásagnir, myndir, kort og annað sem tengist múrnum.

The Palestinian NGO Network
Netverk yfir 90 palestínskra samtaka sem starfa óháð stjórnvöldum á ýmsum sviðum palestínsks þjóðlífs – m.a. að mannréttinda-, kvenréttinda- og neytendamálum, umhverfisvernd og heilsugæslu. Meðal meðlima eru palestínski Rauði hálfmáninn, The Union of Palestinian Medical Relief Committees (UPMRC) og The Academic Society for the Study of International Affairs (PASSIA). Inniheldur upplýsingar um netverkið og meðlimi þess, en PNGO Network heldur einnig úti upplýsingaþjónustunni Palestine Monitor (www.palestinemonitor.org) og er vefur hennar mun íburðarmeiri.

Addameer
Samtök sem vinna að því að verja mannréttindi palestínskra fanga í Ísrael. Hér má finna margs konar fróðleik og tölfræði, ekki síst um pólitíska fanga.

Al-Haq
Samtök sem njóta stöðu álitsgjafa í Efnahags- og félagsmálaráði Sameinuðu þjóðanna. Voru stofnuð árið 1979 af hópi palestínskra lögfræðinga í þeim tilgangi að standa vörð um lög og reglu og að verja mannréttindi Palestínumanna á hernumdu svæðunum.

Muwatin
Þessi palestínska stofnun hefur þann tilgang að auka veg lýðræðis í Palestínu. Stofnunin hefur samstarf við aðrar palestínskar menntastofnanir um rannsóknir og verkefni í þágu lýðræðis.

The Palestinian Center for Rapprochment between people (PCR)
Samfélagsmiðstöð með aðsetur í Beit Sharour á Vesturbakkanum sem stendur fyrir margvíslegum verkefnum á sviði samfélagsþjónustu og friðarmála.

Al Mezan Center for Human Rights
Mannréttindasamtök með aðsetur í Jabalia flóttamannabúðunum í Gaza. Vinnur að verndun mannréttinda á palestínsku herteknu svæðunum og aðstoð við fórnarlömb mannréttindabrota.

The Palestinian Independent Commission for Citizens Rights
Stofnun sem sett var á fót af Yassir Arafat, fyrsta forseta Palestínumanna, árið 1993 þegar palestínska heimastjórnin fékk takmörkuð yfirráð yfir hluta af Vesturbakkanum og Gaza. Eiga að starfa óháð heimastjórninni og vinna að því að mannréttindi og alþjóðalög séu í heiðri höfð í Palestínu.

The Mandela Institute for Human Rights – Palestine
Mannréttindasamtök sem vinna að réttindum palestínskra pólitískra fanga sem stofnuð voru 1989, á meðan fyrri Intifada uppreisn Palestínumanna gegn ísraelsku hernámi stóð yfir. Eru ekki tengd Nelson Mandela að öðru leyti en nafninu, sem samtökin vilja meina að tengjist baráttu pólitískra fanga um allan heim.


Samtök Palestínumanna innan landamæra Ísraels

The Legal Center for Arab Minority Rights in Israel
Samtök sem vinna að mannréttindum palestínskra íbúa innan landamæra Ísraels, sem telja um eina milljón eða um 20% af íbúum Ísraels. Beita sér m.a. fyrir jafnrétti til náms og réttindum fanga, veita lögfræðiaðstoð og reka mál gegn lagasetningum sem mismunar fólki á kostnað uppruna þeirra eða trúarbragða.

The Arab Association for Human Rights
Samtök sem vinna að réttindabaráttu Palestínumanna sem búa innan landamæra Ísraels. Þeir eru um 20% af íbúum Ísraelsríkis og mega þola margskonar mismunun eins og fræðast má um hér. Vefurinn inniheldur m.a. upplýsingar um stöðu Palestínumanna í Ísrael og ágætist hlekkjasafn á fleiri álíka síður.

Associaton of Forty
Samtök 40 arabískra þorpa innan landamæra Ísraels sem ísraelsk yfirvöld neita að viðurkenna. Slík þorp er ekki að finna á opinberum kortum og íbúum þeirra er oft neitað um vatn, rafmagn, heilsugæslu og jafnvel ríkisborgararétt.


Samtök palestínskra kvenna

Women’s Centre for Legal Aid & Councelling
Samtök palestínskra kvenna stofnuð árið 1991 með það að markmiði að efla lýðræði í Palestínu og berjast fyrir félagslegu réttlæti og jafnrétti kynjanna. Hlaut French Republic Award on Human Rights árið 1998. Vefurinn inniheldur margs konar upplýsingar um starfsemi samtakanna, skýrslur Sameinuðu þjóðanna og fleiri aðila og mannréttindi í Palestínu.

General Union of Palestinian Women (GUPW)
Samtök palestínskra kvenna stofnuð árið 1965 sem hluti af Frelsissamtökum Palestínu (PLO). Regnhlífasamtök sem fjölmargar palestínskar kvennahreyfingar eru aðilar að.

Palestinian Working Women Society (PWWS)
Frjáls félagasamtök (NGO) sem stofnuð voru 1981.

The Jerusalem-Center for Women
Óháð miðstöð (NGO) með tengsl við friðarhreyfingunni Bat Shalom sem skipuð er ísraelskum konum. Stofnuð árið 1994.

The Society of Ina’ash El-Usra
Hjálparmtök palestínskra kvenna stofnuð árið 1965 m.a. til að efla stöðu kvenna í palestínsku samfélagi. Standa fyrir námskeiðum, reka læknastofu og leikskóla, veita námsstyrki og reyna veita pólitískum föngum stuðning.

The Society of Ina’ash El-Usra
Hjálparmtök palestínskra kvenna stofnuð árið 1965 m.a. til að efla stöðu kvenna í palestínsku samfélagi. Standa fyrir námskeiðum, reka læknastofu og leikskóla, veita námsstyrki og reyna veita pólitískum föngum stuðning.


Samtök palestínskra flóttamanna

Resource Center for Palestinian Residency & Refugee Rights (BADIL)
Miðstöð með aðsetur í Bethlehem á Vesturbakkanum sem vinnur að réttindum palestínskra flóttamanna og miðla upplýsingum um málefni þeirra. Síðan inniheldur m.a. tölfræðilegar upplýsingar, myndefni, sögu „flóttamannavandans“ og mögulegar lausnir á honum.

Al Awda - The Palestine Right To Return Coalition (PRRC)
Samtök sem vinna að réttindabaráttu palestínskra flóttamanna og upplýsa umheiminn um réttindi þeirra. Vefurinn inniheldur mikið magn upplýsinga um stöðu flóttamanna á herteknum svæðunum og í flóttamannabúðum víða um heim og rétt þeirra að fá að snúa aftur til heimalands síns.

Palestinian Disapora and Refugee Centre (SHAML)
Samtök mannréttindabaráttufólks og fræðimanna sem vilja koma upplýsingum um palestínska flóttamenn og samfélag landflótta Palestínumanna á framfæri sem og vinna að réttindum þeirra á ýmsum sviðum. Síðan inniheldur mikið magn upplýsinga, myndefni og öflugt hlekkjasafn.

Coalition Against the Deportion of Palestinian Refugees
Vefur palestínskra flóttamanna í Kanada og stuðningsmanna þeirra sem berjast gegn því að palestínskir flóttamenn verði sendir úr landi. Vefurinn inniheldur m.a. greinargóða samantekt í máli og myndum um stöðu palestínskra flóttamanna í Líbanon og Palestínu.

electronic intifada

This webpage uses Javascript to display some content.

Please enable Javascript in your browser and reload this page.

hlekkir | ábendingar

Eru eitthvað af hlekkjunum óvirkir? Veist þú um góða vefsíðu fyrir hlekkjasafn Palestina.is? Sendu okkur endilega ábendingar á: palestina@palestina.is.

auglýsing



WWW Palestina.is

Google
 
© Félagið Ísland-Palestína 2007 - palestina@palestina.is