Palestínskur drengur við Aðskilnaðarmúrinn á Vesturbakkanum.
(Ljósmynd: Plataforma per l'Expressió i la Promoció d'ALternatives (la P.E.P.A.)

góð byrjun | stjórnsýsla | upplýsingaveitur | menning & menntun
mannréttindahreyfingar >> palestínskar | ísraelskar | fjölþjóðlegar
sniðganga | samstöðufélög | myndir | staðir | íslenskir vefir | annað

 


Palestínsk menntun - ýmislegt

Palestinian Minstry of Culture
Menningaráðuneyti heimastjórnar Palestínumanna.

Ramallah Filmfestival
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Ramallah á Vesturbakkanum.

Palestine Stamps - Palestine Philatelic Society (P.P.S.)
Samansafn palestínskra frímerkja og þeim sem framleidd hafa verið víða um heiminn og tengjast Palestínu. Hér má m.a. finna frímerki frá Indlandi, Eþíópíu, Sovétríkjunum og Alsír – auk sögulegra frímerkja frá þeim tímum er Palestína var bresk nýlenda, tilheyrði Ottóman ríkinu eða að hluta undir Egypskri og Jórdanskri stjórn.

Palestine Costume Archive
Vefur tileinkaður palestínskum þjóðbúningum.

Palestinian House of Poetry
Heimasíða á vegum heimastjórnar Palestínu tileinkuð palestínskri ljóðlist.

Shammout.com
Á þessum vef hafa hjónin Ismail og Tamam Shammout, sem bæði eru myndlistarmenn, sett upp myndlistarsýningu með sögulegu ívafi. Síðan inniheldur einnig yfirlit yfir listasögu Palestínu, allt sett upp á aðgengilegan hátt í Flash.


Menningarmiðstöðvar og félög í Palestínu

Bethlehem Peace Center
Glæsileg menningarmiðstöð staðsett í miðborg Bethlehem á torgi milli Fæðingarkirkjunnar og mosku Omars. Rekin af borgarráði Bethlehem og sett á laggirnar með aðstoð The Swedish International Development Cooperation Agency (Sida) árið 2000. Í miðstöðinni eru m.a. haldnar lista-, ljósmynda- og kvikmyndasýningar, tónleikar og hátíðir.

The Palestinian National Theatre
Leikhús og listamiðstöð í Jerúsalem sem stofnuð var árið 1984.

Khalil Sakakini Cultural Center
Síða rekin af palestínsku stofnuninni Khalil Sakakini Cultural Center. Inniheldur upplýsingar um stofnunina sjálfa og fræðimanninn Khalil Sakakini (1878-1953), palestínska menningu og það sem er að gerast í menningarlífi landsins. Rekur einnig hliðarsíður um Palentísk ljóðskáld og myndlistarmenn.

Popular Art Center
Óháð menningarmiðstöð sem komið var á laggirnar árið 1987 þegar Intifada uppreisn Palestínumanna braust út. Stendur fyrir árlegri tónlistar- og danshátíð (Palestine International Festival) og smærri listviðburðum og námskeiðum í Palestínu.

Palestine Art
Hópur ungra palestínskra listamanna sem standa fyrir margskonar starfsemi og eru með höfuðstöðvar í Gaza. Innihaldsríkur vefur.

Al-Kasaba
Eitt flottasta og þekktasta kvikmynda- og leikhús Palestínu sem staðsett er í miðborg Ramallah.

Yabous Productions
Samtök palestínskra listamanna í Austur-Jerúsalem sem stendur m.a. fyrir sýningum í borginni.

Al-Ma’mal Foundation for Contemporary Art
Palestínsk listasamtök í Jerúsalem sem standa fyrir útgáfu á bókum og bæklingum, vinnusmiðjum, kvikmyndasýningum og fleiru.

Ashtar Theatre
Palestínskur leikhúshópur með starfsemi í Jerúsalem og Ramallah.

The Palestinian Association of Artists
Samtök palestínskra listamanna með aðsetur í Gaza.

Yabous Productions
Samtök listamanna sem standa fyrir sýningum, tónleikum og listahátíðum í Jerúsalem.

Ibdaa Cultural Center
Menningarmiðstöð í flóttamannabúðunum Dhisheh, skammt frá Bethlehem á Vesturbakkanum.


Menningarmiðstöðvar og félög utan Palestínu

Resistance Art
Vefur tileinkaður palestínskri menningu. Framleiðir og selur palestínska tónlist, bækur með palestínskri list, palestínskt handverk og “Colors of Palestine” dagatölin sem innihalda verk palestínskra listamana.

ArtSchool Palestine
Miðstöð sem ætlað er að skapa samstarfsgrundvöll fyrir palestínska list og alþjóðlegt samstarf. Er með aðsetur í London.

Qattan Foundation
Menningar- og listamiðstöð með starfsemi í London í Bretlandi og Ramallah í Palestínu.

Al-Phan - Palestinian Humanities & Arts Now
Bandarísk samtök sem hafa það að markmiði að kynna palestínska list.

Break the Silence Mural & Arts Project
Samtök listamanna og baráttumanna fyrir mannréttindum sem standa fyrir listrænum verkefnum í hertekinni Palestínu. Stofnuð af bandarískum Gyðingum og hafa m.a. staðið fyrir fyrirlestrum í bandarískum háskólum.


Teikningar, graffíti og myndasögur

Hanthala Palestine
Teiknimyndafígúran Hanthala, sem palestínski listamaðurinn Naji al-Ali skapaði, varð á skömmum tíma vinsælt tákn fyrir mannréttindabaráttu Palestínumanna og hana má finna á húsveggjum í flóttamannabúðum, borgum og þorpum um allan Vesturbakkann og Gaza. Hanthala teikningarnar eru ádeila á hernám Ísraelsmanna, mannréttindarbrot og aðgerðaleysi umheimsins – en Naji al-Ali var einnig óhræddur við að gagnrýna arabískar ríkisstjórnir og Frelsisamtök Palestínu (PLO) í skrifum og teikningum. Hann var myrtur árið 1987. Vefurinn er rekin af samtökunum Hanthala Palestine og inniheldur m.a. skrif Naji al-Ali, teikningar hans og palestínsk ljóð.

Omayya.com
Heimasíða palestínska teiknarans Omayya. Hún er talin vera fyrsta konan til að teikna pólitískar teikningar fyrir dagblöð í arabaheiminum.

Baha-cartoon.net
Heimasíða Baha Boukhari sem teiknar fyrir palestínska dagblaðið Al Ayyam. Inniheldur teikningar af atburðum í Palestínu, Írak og annarstaðar úr heiminum.

Arofish – Graffiti from Baghdad and Palestine
Ljósmyndir af verkum breska graffíti listamannsins Arofish í Qalqilya, Jenin, Abu Dis og Nablus.


Palestínsk tónlist

Sling shot Hip hop - The Palestinian Lyrical Front
Heimildarmynd um palestínskt hip hop. Meðal þeirra sem koma fram í myndinni eru P.R. frá Gaza, Bokutt & Stormtrapp frá Ramallah, Abir og DAM frá Lod. Vefurinn inniheldur m.a. “trailer” fyrir myndina og hér má kaupa diskinn með tónlistinni úr myndinni.

Ramallah Underground
Raftónlist og hip hop frá Ramallah á Vesturbakkanum. Tónlist, ljóð, spjallsvæði og fleira.

Kamiliya Jubran
Vinsæl palestínsk söngkona og hljóðfæraleikari sem sungið hefur á tónlistarhátíðum víða um Evrópu.

Sabreen – Association for Artistic Development
Samtök sem heldur úti ýmsum verkefnum til stuðning palestínskri tónlist – m.a. tónleikum, tónlistarkennslu og útgáfu. Eru með aðsetur í Jerúsalem.

The Edward Said National Conservatory of Music
Tónlistarstofnun Birzeit háskóla á Vesturbakkanum stofnuð árið 1990, en breytti um nafn árið 2004 í minningu um einn af heiðursmeðlimum stofnunarinnar Dr. Edward Said sem lest það ár.

Bethlehem Academy of Music
Akademía fyrir palestínska klassíska músík með aðsetur í Bethlehem.

Da Arabic MC’s - DAM
Palestínsk hip hop hljómsveit frá borginni Lod sem er innan landamæra Ísraels. Stofnuð árið 1988 og telur sig vera fyrstu arabísku hip hop sveitina. Rappa m.a. um glæpi, kvenréttindi, stöðu palestínska minnihlutans í Ísrael og átökin í Palestínu.

The Philistines
Bandarísk hip hop hljómsveit með palestínskar rætur. Vefurinn inniheldur tónlist, upplýsingar og fleira.

Arab Rap
Palestínskur vefur tileinkaður arabískri rapptónlist. Mikið af efni og upplýsingum um palestínskt hip hop, tónlist og fleira.

Hljómsveitin Dir Yassin
Dir Yassin er ísraelsk hardcore-rokk hljómsveit með mjög svo pólitíska texta gegn zíonisma og kynþáttahatri. Bandið heitir eftir þorpinu Dir Yassin þar sem skæruliðahreyfingar Gyðinga frömdu fjöldamorð á Palestínumönnum við stofnun Ísraelsríkis. Á síðunni er hægt að nálgast lög á MP3 formi, texta og upplýsingar um hljómsveitina og hardcore rokksenuna í Ísrael.


Palestínsk menntun - Ýmislegt

Ministry of Higer Education
Ensk útgáfa af vef menntamálaráðaneytis palestínsku heimastjórnarinnar. Inniheldur m.a. upplýsingar um starfsemi ráðuneytisins og alþjóðlegar rannsóknir á menntun í Palestínu.

Palestinian Academic Network
Tengir saman ýmsar menntastofnanir í Palestínu.

The Jerusalem Fund for Education and Community Development
Samtök með aðsetur í Bandaríkjunum sem stofnuð voru til að styðja við nám Palestínumanna á Vesturbakkanum, Gaza og innan landamæra Ísraels. Veita styrki til náms og rannsókna sem varða Palestínu.


Palestínskir háskólar og menntastofnanir

Birzeit University
Einn fjölmennasti háskólinn á Vesturbakkanum staðsettur stutt frá Ramallah. Á síðunni má m.a. finna upplýsingar um skólann sjálfan, nám fyrir útlendinga og menntun í Palestínu. Stofnaður árið 1924, en hóf háskólamenntun árið 1972.

Al-Quds University
Eini arabíski háskólinn í Jerúsalem, stofnaður árið 1984.

Ibrahimieh College
Ein stærsta og þekktasta menntastofnun Jerúsalemborgar. Skólinn, sem gegnir bæði hlutverki barna- og framhaldskóla, var stofnaður árið 1931.

Al-Najah University
Einn fjölmennasti háskóli Palestínu í Nablus á Vesturbakkanum, sem rekur sögu sína allt aftur til ársins 1918.

Arab American University
Fyrsta einkarekni háskólinn í Palestínu stofnaður 1995. Staðsettur í Hebron á Vesturbakkanum.

Hebron University
Stofnaður árið 1971 og með aðsetur í Hebron borg.

Bethlehem University
Stofnaður 1973 með aðsetur í Bethlehem á Vesturbakkanum.

Bethlehem Bible College
Skóli sem sérhæfir sig í kristnum fræðum, stofnaður árið 1971 með aðsetur í Bethlehem á Vesturbakkanum.

Al-Azhar University of Gaza
Einn fjölmennasti háskóli Palestínu, stofnaður árið 1991. Staðsettur í Gaza borg á Gaza ströndinni.

Islamic University
Fyrsta hásólastofnunin á Gaza ströndinni, stofnaður árið 1978 og staðsettur í Gaza borg.

electronic intifada

This webpage uses Javascript to display some content.

Please enable Javascript in your browser and reload this page.

hlekkir | ábendingar

Eru eitthvað af hlekkjunum óvirkir? Veist þú um góða vefsíðu fyrir hlekkjasafn Palestina.is? Sendu okkur endilega ábendingar á: palestina@palestina.is.

auglýsing



WWW Palestina.is

Google
© Félagið Ísland-Palestína 2007 - palestina@palestina.is