Ísraelskar mannréttindahreyfingar og samtök
Gush Shalom
Öflug samtök friðarsinna í Ísrael. Berjast fyrir afnámi hernáms Ísraela á arabísku landi og mannréttindum í Palestínu og innan landamæra Ísraels. Forvígismaður samtakanna er Uri Avneri, fyrrverandi hermaður, sem hefur snúið sér að andófi gegn því óréttlæti sem Palestínumenn eru beittir. Gush Shalom rekur öflugan póstlista sem óhætt er að mæla með fyrir þá sem vilja fylgjast með framvindu mála í Ísrael og Palestínu.
B'Tselem
Ísraelsk mannréttindasamtök sem hafa það að markmiði að veita upplýsingar um mannréttindabrot Ísraelsmanna í hertekinni Palestínu. Samtökin beita sér fyrir því að breyta stefnu ísraelska stjórnvalda á herteknu svæðunum (Vesturbakkanum og Gaza) og að farið verði að alþjóðalögum á svæðinu.
The Israeli Committee Against House Demolitions (ICAHD)
Samtök sem berjast gegn eyðileggingu ísraelska hersins á heimilum fólks í Palestínu. Vefurinn inniheldur margvíslega upplýsingar um húseyðileggingar í Palestínu og starfsemi samtakana, frásagnir sjónarvotta og fórnarlamba og athyglisvert video sem skýrir sjónarmið ICAHD.
Peace Now
Ein elstu og stærstu friðarsamtök Ísraels sem sett voru á fót árið 1978 af ofurstum og hermönnum í varaliði Ísraelshers til að þrýsta á ísraelsk stjórnvöld að semja frið við Palestínumenn og arabísk nágrannaríki sín. Starfa einnig í Bandaríkjunum og fleiri löndum.
Physicians for Human Rights (PHR)
Samtök ísraelskra lækna sem voru stofnuð árið 1988, nokkrum mánuðum eftir að Intifada uppreisn Palestínumanna hófst, til að vinna að mannréttindamálum í Ísrael og herteknu svæðunum. Hafa m.a. beitt sér gegn því að ísraelskir læknar taki þátt í pyntingum á palestínskum föngum og að íbúum Palestínu sé neitað um læknaþjónustu.
Rabbis for Human Rights
Ísraelsk mannréttindasamtök rabbína sem stofnuð voru árið 1988 í ljósi hryllilegra mannréttindabrota ísraelska hersins á herteknu svæðunum á upphafsmánuðum fyrstu Intifada uppreisnar Palestínumanna. Hafa mótmælt harðlega árásum hernámsliðsins á heimili Palestínumanna og mannréttindabrotum í Palestínu.
Samtök Ísraela sem neita gegna herþjónustu
Yesh Gvul
Ísraelskur friðarhópur sem stofnaður var árið 1982 til stuðnings þeim Ísraelum sem neita að gegna herþjónustu. Hundruð Ísraela neituðu að taka þátt í obfeldisverkum hersins þegar innrásin í Líbanon stóð yfir 1982 og fyrir Intifada uppreisnin á herteknu svæðunum 1987-93. Margir þeirra voru fangelsaðir. Hundruðir Ísraela neita að gegna herþjónustu á herteknu svæðunum í dag. Samtökin dreifa m.a. bæklingum þar sem hermenn eru hvattir til að hlýta alþjóðalögum og mannréttindasáttmálum og styðja við bakið á þeim sem neitað hafa þjóna í ísraelska hernum á herteknu palestínsku landi.
Courage to Refuse
Vefsíða sem ísraelskir hermenn sem neita að taka þátt í hernáminu á Vesturbakkanum og Gaza halda úti. “Við, sem vitum að [hernumdu] svæðin eru ekki Ísrael, og að nauðsynlegt er að yfirgefa allar landnámsbyggðir á endanum [...], við munum ekki halda áfram að berjast handan landamæranna frá 1967 til að ráða yfir, reka burtu, svelta og auðmýkja heila þjóð." Nokkrir á listanum hafa verið handteknir fyrir að neita að gegna herskyldu. Vefurinn inniheldur m.a. ýmsar upplýsingar hernám Ísraela.
Refuse Solidarity Network
Alþjóðlegt átak sett á laggirnar af friðarsamtökum Gyðinga, Not In My Name, til stuðnings Ísraelum sem neita að gegna herþjónustu á herteknu svæðunum í Palestínu. Vel uppsettur vefur með ýmsum upplýsingum, yfirlýsingum, undirskriftarlistum og fleiru.
Samtök ísraelskra kvenna
Bat Shalom
Friðarsamtök ísraelskra kvenna með aðsetur í Jerúsalem sem m.a. berjast fyrir friði á milli Ísraela og Palestínumanna og arabískra nágrannaríkja Ísraels. Samtökin vilja sjá frjálst palestínskt ríki við hlið Ísraels með Jerúsalem sem höfuðborg beggja ríkja. Síðan inniheldur m.a. upplýsingar um starfsemi samtakanna innan Ísraels og á herteknu svæðunum.
Machsom Watch - Women for Human Rights
Ísraelsk friðarsamtök kvenna sem reyna fylgjast með mannréttindabrotum við vegatálma og varðstöðvar ísraelska hernámsliðsins í Palestínu. Á vefnum má meðal annars finna lýsingar sjónarvotta á vegum samtakana.
Coalition of Women for Peace
Samstarfshópur ísraelskra kvennasamtaka á borð við Women in Black og Bat Shalom. Berjast fyrir réttlátum friði á milli Ísraela og Palestínumanna. Mörg samtakanna vinna með palestínskum friðarhreyfingum.
|