Íslenskir vefir sem tengjast málefnum Palestínu og Ísrael
Rauði kross Íslands
Hefur styrkt mannúðarstarf í Palestínu með ýmsu móti. Hægt að fara í “finna” á forsíðu og slá inn “Palest” til að fá lista yfir efni tengt Palestínu og Ísrael á vefnum.
Amnesty International - Íslandsdeild
Vefur íslandeildar Amnesty International, sem beita sér með margvíslegum hætti fyrir mannréttindum og réttindum pólitískra fanga í Palestínu og Ísrael.
Alþingi
Með því að skrifa inn leitarorðin "palest*" og "ísrael*" í leit má finna nýlegar ræður og nýleg þingskjöl tengd málefnum svæðisins.
Aldeilis.net
Sérvefur um Palestínu, Ísrael og Zíonisma á gagnabankanum Aldeilis.net sem Elías Davíðsson heldur úti. Leiðarvísir í starfi Aldeilis.net, sem stafar óháð stjórnvöldum, stjórnmálasamtökum og fyrirtækjum, er Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna. Á vefnum má m.a. finna "Harmsögu Palestínumanna: greinarsafn um atburðina 1948" sem Félagið Ísland-Palestína gaf út árið 1988 og upplýsingar um réttarstöðu Jerúsalemborgar.
Mbl.is-Uppreisn í Palestínu
Fréttaskýringarvefur Morgunblaðsins um átökin í Palestínu með kortum og örðu myndefni. Vefurinn inniheldur m.a. fróðleik um Ísrael og Palestínumenn, friðarferlið og palestínsku sjálfstjórnarsvæðin.
Félagið Zion - Vinir Ísraels
Vefur Félagsins Zion-Vinir Ísraels, sem lítur á stofnun Ísraelsríkis 1948 sem uppfyllingu fyrirheita Guðs sem gefin voru í Biblíunni. Félagið stendur m.a. fyrir skipulögðum ferðum til Ísraels og gefur út tímaritið Ísraels fréttir sem nálgast má á vefnum í PDF formi. Vefurinn inniheldur upplýsingar um þátt Íslands í stofnun Ísraels og krækjur á ýmsar vefsíður sem eru hallar undir Zíonisma og útþenslustefnu Ísraelsmanna.
Samfélag trúaðra
Síða tileinkuð Ísrael á vef Samfélagi trúaðra. Hér má m.a. finna ýmis gögn um þátt Íslands í stofnun Ísraelsríkis og starfi Sameinuðu þjóðanna sem leiddi til ályktunar um skiptingu Palestínu árið 1947. Aðstandendur síðunnar vitna í Biblíuna í stuðningi sínum við Ísraelsríki og telja Osló og Wye samkomulag Ísraela og Palestínumanna - sem veitti Palestínumönnum á Vesturbakkanum og Gaza vissa sjálfstjórn á takmörkuðu svæði - vera skipting á landi Ísraelsmanna.
Vísindavefurinn
Vísindavefur Háskóla Íslands tekur á móti spurningum um allt milli himins og jarðar, sem starfsmenn Háskólans reyna síðan að finna svör við og birta á vefnum. Vísindavefurinn fjallar um öll vísindi, hverju nafni sem þau nefnast, allt frá stjörnufræði til handrita og frá sameindalíffræði til sálarfræði. Hægt er að finna greinargóð svör við spurningum sem sendar hafa verið vegna ástandsins í Mið-Austurlöndum ef leitað er að orðunum "Palestína" og "Ísrael".
|