Palestínskur drengur við Aðskilnaðarmúrinn á Vesturbakkanum.
(Ljósmynd: Plataforma per l'Expressió i la Promoció d'ALternatives (la P.E.P.A.)

góð byrjun | stjórnsýsla | upplýsingaveitur | menning & menntun
mannréttindahreyfingar >> palestínskar | ísraelskar | fjölþjóðlegar
sniðganga | samstöðufélög | myndir | staðir | íslenskir vefir | annað

 


Fjölþjóðlegar mannréttindarhreyfingar og samtök

Amnesty International, Israel & Palestine section
Sérvefur Amnesty International um Ísrael og Palestínu. Birtir reglulega skýrslur um mannréttindabrot ísraelska hernámsliðsins í Palestínu og einnig palestínsku heimastjórnarinnar.

Palestine Red Crescent Society
Palestínski Rauði hálfmáninn, sem er hluti af alþjóðahreyfingu Rauða krossins, rekur öflugt hjálparstarf á Vesturbakkanum og Gaza. Vefurinn inniheldur mikið magn upplýsinga m.a. um árásir á sjúkrabíla og lækna, áhrif hernámsins á daglegt líf Palestínumanna og tölur yfir látna og særða.

Human Rights Watch
Sérvefur alþjóðlegu mannréttindasamtakanna Human Rights Watch um Ísrael og Palestínu. Inniheldur m.a. skýrslur um mannréttindabrot Ísraela innan landamæra sinna og á herteknu svæðunum, auk gagnrýni á palestínsku heimastjórnina.

Defence for Children International - Palestine Section
Samtök sem berjast gegn fangelsunum og öðrum mannréttindabrotum sem palestínsk börn eru beitt og reyna veita þeim lögfræðiþjónustu, ráðgjöf og félagslega hjálp. Síðan inniheldur m.a. upplýsingar um börn í ísraelskum fangelsum og hvaða áhrif hernámið í Palestínu hefur á börn.

Middle East Children's Alliance
Óháð samtök með aðsetur í Bandaríkjunum sem vinna að friði og réttlæti í Palestínu, Ísrael, Líbanon og Írak. Styðja við ýmiskonar hjálparstarf til að minnka þjáningar barna á svæðinu og reyna upplýsa Bandaríkjamenn um Mið-Austurlönd og stefnu bandarískra stjórnvalda.

Eye to Eye–Save the Children
Síða á vegum alþjóðlegu hjálparsamtakanna Save the Children um palestínska flóttamenn. Inniheldur m.a. kort, myndir, frásagnir úr flóttamannabúðum, viðbrögð barna við Intifada uppreisnunum og svör við spurningum á borð við „hverjir eru Palestínumenn?“ og „af hverju erum við flóttamenn?“.

GRI's Palestine Program
Grassroots Online er síða með aðsetur í Bandaríkjunum sem tekur fyrir grasrótar baráttu í nokkrum heimshlutum, m.a. í Austur-Tímor, Erítreu og Mexíkó. Samtökin halda úti sérvef um Palestínu. Athyglisvert framtak.

Palestine Children’s Welfare Fund (PCWF)
Samtök sem reyna bæta lífsskilyrði palestínskra barna í flóttamannabúðum – m.a. með bættri menntun og heilsugæslu.


Mannréttindahreyfingar og samtök Gyðinga utan Ísraels

Jews Not Zionists
Vefsíða rekin af trúuðum Gyðingum og tengd hinum alþjóðlegu Neturei Karta samtökum. Síðan miðlar upplýsingum um hugmyndafræði zíonismans og þeir sem að henni standa telja stofnun sérrikis fyrir Gyðinga, Ísraels ganga þvert á boðskap trúarrita Gyðingdómsins. þeir halda því fram að Gyðingar og íslamskir og kristnir Arabar geti lifað í friði í Landinu helga eins og þeir hafa gert öldum saman.

Neturei Karta
Alþjóðleg samtök trúaðra Gyðinga með aðsetur í New York, stofnuð árið 1937 til að berjast gegn hugmyndum zíonismans. Telja Ísraelsríki ekki þjóna hagsmunum Gyðinga og eru á móti því að blóði þeirra og annarra sér úthelt fyrir sérríki ætluðu þeim. Síðan inniheldur m.a. fréttir, greinar og ýmsar upplýsingar trúarlegs eðlis.

Not In My Name
Samtök Gyðinga með aðsetur í ýmsum borgum í Bandaríkjunum. Berjast fyrir réttlátum frið í Mið-Austurlöndum þar sem bæði Ísraelsmenn og Palestínumenn geta búið við öryggi og frelsi. Vilja að palestínskir íbúar Ísrael fái sömu réttindi og aðrir íbúar landsins, að Ísrael hætti húseyðileggingum, pyntingum og öðrum mannréttindabrotum og að Bandaríkjastjórn hætti stuðningi sínum við Ísrael þar til Ísraelsher lætur af hernámi sínu á Vesturbakkanum, Austur-Jerúsalem og Gaza.

Jews Against the Occupation
Mannréttindasamtök Gyðinga sem styðja kröfur Palestínumanna um að fá að snúa aftur til heimalands síns og að endir verði bundinn á hernám Ísraela í Palestínu. Vilja að bandarískri aðstoð við Ísrael verði hætt, þar sem meirihluti hennar fer í hergögn. Samtökin berjast gegn Gyðinga- og kynþáttahatri í öllum myndum og styðja því frelsisbaráttu Palestínumanna.

A Jewish Voice for Peace
Grasrótahreyfing Gyðinga með aðsetur í Kaliforníu. Berjast fyrir mannréttindum Gyðinga, Palestínumanna og annara þjóða í Mið-Austurlöndum. Styðja rétt Palestínumanna til sjálfsstjórnar og vilja að Ísraelar ljái máls á réttlátri lausn fyrir palestínska flóttamenn, fari frá herteknu svæðunum og leysi upp landránsbyggðir á palestínsku landi.

Jews Peace Fellowship
Friðarhreyfing Gyðinga sem berst fyrir friði og mannréttindum á ýmsum vígstöðvum. Styður tilverurétt Ísraels en vill að endir verði bundinn á hernám Vesturbakkans og Gaza og að Ísrael semji frið við nágranna sína. Höfuðstöðvar JPF eru í New York.

The Jewish Peace Lobby
Samtök Gyðinga með aðsetur í Bandaríkjunum sem vinna að réttlátum friði milli Ísraela og Palestínumanna. Stofnuð árið 1989. Hafa í dag um 5.000 meðlimi, þar á meðal um 400 rabbína.

Visions of Peace With Justice in Israel/Palestine
Samtök Gyðinga með aðsetur í Boston, sem vinna að réttlátum friði milli Ísraela og Palestínumanna. Inniheldur m.a. greinar um þá ósmekklegu aðferð að kalla gagnrýni á Ísrael gyðingahatur eða anti-semetisma.

Jewish Friends of Palestine
Vefgátt yfir samtök Gyðinga sem styðja mannréttindabaráttu Palestínu. Hér má finna miklu fleiri samtök en tekin eru saman í hlekkjasafni Palestina.is hér að ofan. Inniheldur einnig vísanir í undirskriftarsafnanir, póstlista og heimasíður einstakra Gyðinga sem styðja frjálsa Palestínu.

electronic intifada

This webpage uses Javascript to display some content.

Please enable Javascript in your browser and reload this page.

hlekkir | ábendingar

Eru eitthvað af hlekkjunum óvirkir? Veist þú um góða vefsíðu fyrir hlekkjasafn Palestina.is? Sendu okkur endilega ábendingar á: palestina@palestina.is.

auglýsing



WWW Palestina.is

Google
© Félagið Ísland-Palestína 2007 - palestina@palestina.is