Verslun
-
Palestínskar vörur og verslun til stuðnings Palestínumönnum
Palestine Online Store
Verslun með varning sem er frá eða tengist Palestínu. Hér má meðal annars finna bækur, myndir, tónlist og handverk. Hluti af söluverðmæti varningsins rennur til mannúðarstarfa í Palestínu.
Resistance Art
Vefur tileinkaður palestínkri menningu. Framleiðir og selur palestínska tónlist, bækur með palestínskri list, palestínskt handverk og “Colors of Palestine” dagatölin sem innihalda verk palestínskra listamana.
Hadeel
Verslun sem einbeitir sér að sölu palestínsks varnings frá herteknu svæðunum og flóttamannabúðum í Líbanon.
Sambar – For Pins & Flags
Verslun með mikið úrval nælna og fána með tengingu við Palestínu og frelsisbaráttu palestínsku þjóðarinnar. Selja einnig húfur, klúta og fleira.
Taybeh Brewing Company
Palestínski bjórframleiðandinn Taybeh er með verksmiðju í samnefndum bæ ekki langt frá Ramallah á Vesturbakkanum. Um er að ræða eina palestínsku bjórtegundina sem þykir hinn besti mjöður og er lýst er sem “a nice beer, made, you might say, to toast peace” (New York Times), “brewing a novelty in the Middle East (The Bostong Globe) og “the best microbrewery in the Middle East” (Newsweek).
The Alternative Beer Company
Fyrirtæki sem sérhæfir sig í að flytja inn palestínska Taybeh bjórinn í Bretlandi. Hluti af ágóðanum fer til góðgerðamála í Palestínu og styrkja hreyfingu Ísraelsmanna sem neita að gegna herþjónustu á Vesturbakkanum.
Olive Cooperative
Vefur sem skipuleggur ferðalög um Palestínu og selja palestínskar vörur eins og olifolíu – aðallega í Bretlandi.
Zaytoun
Stendur fyrir sölu á palestínskri olifíuolíu til einstaklinga og fyrirtækja. Eru með aðsetur í Bretlandi.
Holy Land Olive Oil
Stendur fyrir innfluttning á palestínskri olifolíu í Bandaríkjunum. Inniheldur margvíslegar upplýsingar um gæði palestínsku olifolíunnar.
Arab Film Distribution
Hér eru fáanlegar fjölmargar palestínskar og ísraelskar kvikmyndir auk heimildarmynda um átökin á svæðinu á DVD og VHS formi. Hér geturðu m.a. keypt þekktar heimildarmyndir á borð við Jenin Jenin, Checkpoint og Gaza Strip. Flott úrval.
Ferðalög
This Week in Palestine
Tímartit með aðsetur í Ramallah á Vesturbakkanum. Kemur út mánaðarlega á prenti sem nokkurskonar Whats On leiðarvísir fyrir ferðamenn og er dreift á hótel og veitingastaði í Palestínu. Vefútgáfan inniheldur m.a. upplýsingar fyrir ferðamenn, bókadóma, viðskiptafréttir og greinar um ástandið í Palestínu.
Alternative Tourist Group
Margvíslegar upplýsingar nytsamlegar fyrir ferðamenn sem hyggja á að fara til Palestínu - t.a.m. sérstakur leiðarvísir (the Palestinian Guidebook) fyrir ferðalög um landið. Tilgangur Alternative Tourist Group er að stuðla að aukinni ferðaþjónustu til Palestínu.
The Hotels of Palestine
Arab Hotel Association rekur rekur þessa síðu. Hérna er hægt að fá upplýsingar um hótel í Bethlehem, Jerúsalem, Gaza, Nablus, Hebron og Ramallah. Hægt er að panta herbergi beint í gegnum síðuna.
Visit Palestine
Vefur rekinn af ferðamálaráðuneyti heimastjórnar Palestínumanna. Frekar illa gerð og óaðgengilegur - en inniheldur þó upplýsingar um hótel, matsölustaði, borgir og áhugaverða staði til að heimsækja í Palestínu.
Experience Palestine Tours
Vefur á vegum Jerusalem Hotel sem stendur fyrir skipulegum ferðum um Vesturbakkann og Gaza ströndina ásamt ferðum með leiðsögumanni um Jerúsalem.
Bethlehem 2000
Vefur um Bethlehem og Landið helga. Hér má nálgast ýmsar upplýsingar fyrir þá sem hyggja á ferðalag til Palestínu.
Íþróttir
Palstinian Minstry of Youth and Sport
Æsku- og íþróttamálaráðuneyti palestínsku heimastjórnarinnar.
Palestine Football Association
The Palestine Football Association var stofnað árið 1928 í Jerúsalem og Palestína tók fyrst þátt í forkeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu 1934, en þá var landið nýlenda Breta (flokkað sem verndarsvæði). Knattspyrnumenning Palestínumanna varð fyrir áfalli við stofnun Ísraels 1948 og að nýju við hernám Vesturbakkans og Gaza tæpum 20 árum síðar. Árið 1994 fékk Palestine Football Association, fyrir hönd palestínsku heimastjórnarinnar, að nýju aðild að FIFA og hefur síðan tekið þátt í helstu undankeppnum og mótum í Asíu og Arabaheiminum. Hér má finna ýmsar upplýsingar um palestínska knattspyrnu og einnig er hægt að kaupa flottan landsliðsbúning liðsins, derhúfur og fleira.
Futbol Palestina 2006
Vefur tengdur heimildarmyndinni Futbol Palestina 2006 sem segir frá því hvernig palestínska þjóðin hefur þrátt fyrir hernám í landi sínu náð að halda úti landsliði í knattspyrnu. Palestína náði ágætum árangri í forkeppni fyrir heimsmeistaramótið 2006 og fékk 7 stig í riðli með Uzbekistan, Írak og Taiwan. Vefurinn inniheldur upplýsingar um palestínska liðið og knattspyrnu í Palestínu.
Palestinian Handball Assoctioan
Palestínska
handknattleikssambandið hefur verið meðlimur í Alþjóða handknattleikssambandinu (IHF) frá 1980. Er ekki enn komið með vefsíðu þannig að þessi hlekkur vísar í prófíl Palestínu á IHF vefnum.
Palestínskt blogg
Bethlehem Ghetto
Gluggi inn í veröld Bethlehem búa. Daglegt líf undir hernámi með Aðskilnaðarmúrinn sem nágranna.
I Am a Palestinian
Sögur og ljóð frá Palestínumönnum í hertekinni Palestínu og annarstaðar í veröldinni. Flottur vefur.
Rafah Pundits
Athyglisvert blogg frá borginni Rafah á Gaza ströndinni. Uppfært reglulega í máli og myndum.
Reports from Rafah
Rafah búinn Mohammed með frásagnir og ljósmyndir frá heimaborg sinni; Rafah á Gaza ströndinni. Hér má m.a. finna myndir af afleiðingum húseyðilegginga hernámsliðsins.
Occupied Gaza
Íbúi Gaza strandarinnar bloggar.
Gaza.blogspot.com
Blogg á vegum sjálfboðaliða sem störfuðu á Gaza ströndinni 2003.
Palestínskar hreyfingar og stjórnmálasamtök
Fatah
Heimasíða stærstu og öflugustu stjórnmálahreyfingar Palestínumanna. Stofnuð formlega árið 1959, hafa frá 1968 verið leiðandi afls innan Frelsissamtaka Palestínu (PLO) og frá 1993 gegnt helstu áhrifastöðum innan heimastjórnar Palestínumanna. Naut forystu Yassirs Arafats þar til hann lést í lok 2004. Fatah er aðili að Socialist International, heimssamtökum sósíaldemókratískra flokka - sem Samfylkingin hér á landi, Kristilegir Demókratar í Þýskalandi og breski Verkamannaflokkurinn eiga m.a. aðild að. Langt frá því að vera öflug síða, en hér má þó finna einhverjar upplýsingar um hreyfinguna og ályktanir.
The Palestine Information Center (Hamas)
Alþjóðlegur vefur Hamas samtakanna (Islamic Resistance Movement) sem stofnuð voru árið 1987 til að standa vörð um íslömsk gildi í palestínsku samfélagi og berjast gegn ísraelsku hernámi í Palestínu. Hernaðararmur samtakana hefur framið fjölmörg hryðjuverk gegn óbreyttum borgurum, en einnig aflað sér vinsælda fyrir vopnaða andspyrnu gegn ísraelska hernámsliðinu og landránsmönnum í Palestínu. Starfa einnig við fátæktarhjálp í palestínsku samfélagi. Frá árinu 2003 hafa samtökin verið skilgreind sem hryðjuverkasamtök af Bandaríkjunum og Evrópusambandinu. Líkt og Ísrael viðurkennir ekki tilverurétt ríkis Palestínumanna viðurkennir Hamas ekki Ísraelsríki. Hafa lengi verið helsti keppinautur Frelsissamtaka Palestínu (PLO) um áhrif meðal Palestínumanna, eru andsnúin Oslóar-samkomulagi PLO og Ísraels og hafa ekki tekið þátt í helstu kosningum innan heimastjórnar Palestínumanna.
Islamic Jihad for Palestine
Enskur vefur tengdur palestínska Islamic Jihad sem stofnuð voru 1981 til að berjast gegn Ísrael og ísraelsku hernámi í Palestínu. Hafa framið hafa fjölmörg hryðjuverk gagnvart óbreyttum borgurum í Ísrael, en einnig staðið fyrir vopnaðri andspyrnu innan hertekinnar Palestínu gegn Ísraelsku hernámi og landráni. Eru víða á Vesturlöndum á lista yfir hryðjuverkasamtök. Eru andvíg Oslóar-samkomulagi PLO og Ísraels og hafa ekki tekið þátt í kosningum til heimastjórnar Palestínumanna.
The Popular Front for the Liberation of Palestine (PFLP)
The Popular Front for the Liberation of Palestine (PFLP) er ein elsta hreyfing Palestínumanna, stofnuð árið 1967 en með rætur í Arab Nationalist Movement (ANM) sem sett var á laggirnar árið 1953. Dr. George Habash, kristinn Palestínumaður, var lengi vel leiðtogi samtakana sem aðhyllist sósíalíska hugmyndafræði og á aðild að Frelsissamtökum Palestínumanna (PLO). PFLP hafa bæði staðið fyrir vopnaðri andspyrnu gegn ísraelsku hernámi í Palestínu og framkvæmt hryðjuverk gegn óbreyttum borgurum í Ísrael og annarstaðar. PFLP hefur verið andsnúið Oslóar-samningsferlinu, en viðurkennir samþykktir S.þ. Berst fyrir því að stofnað verði sjálfstætt ríki Palestínumanna með Jerúsalem sem höfuðborg og að palestínskir flóttamenn fái að snúa aftur til heimalands síns. Sem stjórnmálaafl hefur PFLP að mestu sniðgengið kosningar innan heimastjórnar Palestínumanna.
Al-Mubadara – The Palestinan National Initiative
Vefur stjórnmálaflsins Al-Mubadara eða Palestinian National Initiative sem sett var á laggirnar árið 2002 af þeim Mustafa Barghouthi (núverandi formaður), Haidar Abdul Shafi og Ibrahim Dakkak. Vilja stuðla að auknu lýðræði á hernumdu svæðunum og berjast fyrir mannréttindum Palestínumanna. Mustafa Barghouthi hlaut 19,8% atkvæða í forsetakosningum í Palestínu 2005.
Palestinian People's Party
Fyrrverandi kommúnistaflokkur Palestínu sem á rætur sínar að rekja til ársins 1919 þegar nokkrir innflytjendur gyðinga stofnuðu Palestine Communist Party (PCP). Árið 1943 klofnaði arabíski hluti flokksins í the National League in Palestine, sem fjórum árum síðar var eina hreyfing Palestínumanna sem samþykkti tillögu Sameinuðu þjóðanna um skiptingu Palestínu í land gyðinga og araba. Breytti um nafn eftir að Jórdanía innlimaði Vesturbakka Palestínu í ríki sitt 1950 í Communist Party of Jordan, en tók heitið Palestine Communist Party uppað nýju árið 1982. Hefur frá árinu 1991 kallað sig Palestinian People's Party. Lítill flokkur sem þó hefur fylgismenn um allan Vesturbakkann og tók virkan þátt í fyrri Intifada uppreisn Palestínumanna (1987-93). Aðili að Frelsisamtökum Palestínu (PLO) frá árinu 1987, studdi Óslar-samkomulagið 1993, hefur tekið þátt í kosningum innan heimastjórnarinnar og skipað ráðherraembætti innan hennar. Ensk útgáfa síðunnar er enn í vinnslu.
The Palestinian Democratic Union (FIDA)
Stjórnmálasamtök sem stofnuð voru árið 1990 eftir klofning frá Democratic Front for the Liberation of Palestine (DFLP). Eru til vinstri í palestínskum stjórnmálum. Studdu Oslóar-samkomulagið árið 1993 og hafa tekið þátt í kosningum innan heimastjórnar Palestínumanna.
|