Hlekkir
Inngangur >> Góð byrjun
Hlekkjasafn Palestina.is inniheldur flokkaða samantekt á yfir 300 vefsíðum sem tengjast Palestínu og Ísrael. Innihald þeirra endurspeglar ekki nauðsynlega afstöðu Félagsins Ísland-Palestína. Allar ábendingar um fleiri hlekki og villumeldingar vel þegnar á póstfangið; palestina@palestina.is
Hér á eftir koma tíu vefsíður sem vefsjórar Palestina.is vilja mæla sérstaklega með sem góða byrjun fyrir þá sem vilja kynna sér frekar eðli átakanna í Palestínu og helstu deilumál Palestínumanna og Ísraela.
Stop the Wall
Frábær vefur the Palestinian Environmental NGOs Network (PENGON) tileinkaður Aðskilnaðarmúrnum í Palestínu. Staðreyndir, alþjóðalög, frásagnir, myndir, kort og annað sem tengist múrnum.
Palestine Monitor
Afar góð inngangssíða að efni tengdu Palestínu og Ísrael. Síðan er rekin af Palsestinian NGO Networks sem tengir saman starfsemi ýmissa samtaka í Palestínu sem rekin eru óháð yfirvöldum (e. NGO) m.a. á sviði mannréttinda, umhverfisverndar og heilsugæslu. Mælum með efnisliðnum ‘Fact Sheets’.
The Palestinian Initiative for the Promotion of Global Dialogue & Democracy (MIFTAH)
Samtök sem berjast fyrir lýðræði, mannréttindum og málfrelsi í Palestínu. Reka mjög góða upplýsingasíðu sem inniheldur m.a. nýjar fréttir, fréttatilkynningar, söguleg skjöl og reglulega pistla frá Hanan Ashrawi, einni helstu baráttukonu Palestínumanna.
PLO Negotions Affairs Department
Stór og flottur vefur á vegum Viðræðunefndar Frelssisamtaka Palestínumanna (PLO). Afstaða Palestínumanna útskýrð til málefna eins og stöðu Jerúsalem, flóttamanna, landamæra, landsetumanna og landráns í Palestínu.
Gush Shalom
Ísraelsk friðarsamtök sem berjast gegn hernámi Ísraela í Palestínu. Forvígismaður samtakanna Uri Avneri er fyrrverandi hermaður sem barðist einnig með Irgun skæruliðahreyfingu gyðinga fyrir stofnun Ísraels. Óhætt að mæla með skráningu á póstlista samtakanna og bæklingana The Wall og Truth on Truth sem nálgast má á PDF formi.
Al Awda – The Palestine Right To Return Coalition (PRRC)
Samtök sem vinna að réttindabaráttu palestínskra flóttamanna og upplýsa umheiminn um rétti þeirra til að snúa aftur til heimalands síns. Vefurinn inniheldur m.a upplýsingar um stöðu flóttamanna á herteknum svæðunum og í flóttamannabúðum víða um heim.
United Nations Relief and Works Agency for Palestine Refugees in the Near East (UNRWA)
Góður vefur um stöðu og sögu palestínskra flóttamanna. Inniheldur m.a. ýmsar tölfræðilegar upplýsingar, myndir og kort af flóttamannabúðum Palestínumanna.
Palestine Rembembered
Efnismikil síða tileinkuð sögu Palestínu og örlögum palestínskra flóttamanna. Inniheldur m.a. myndir, frásagnir flóttamanna, kort og ýtarlegar upplýsingar um byggðir Palestínumanna sem í hundraðatali hafa verið lagðar í rúst. Meðal efnisliða eru „The Conflict For Beginners“, „Zionism 101“ og „Refugees 101“.
Neturei Karta
Alþjóðleg samtök trúaðra gyðinga með aðsetur í New York, stofnuð árið 1937 til að berjast gegn hugmyndum zíonismans. Eru á móti því að blóði gyðinga og annarra sér úthelt fyrir sérríki ætluðu þeim. Síðan inniheldur m.a. fréttir, greinar og ýmsar upplýsingar trúarlegs eðlis.
Locater – This.is/thewall og This.is/jenin
Flottur vefur sem innheldur m.a. sérvefina “this.is/thewall” og “this.is/jenin” sem gefur okkur innsýn í líf fólks við Aðskilnaðarmúrinn og í Jenín. Mikið safn góðra ljósmynda, kort og frásögur fólks í hljóði og mynd allt sett fram á skemmtilegan og frumlegan máta af sænska listamanninum Cecilia Parsberg.