Barn í Rafah á Gaza svæðinu sem misst hefur heimili sitt af völdum húseyðilegginga ísraelska hernámsliðsins.
kynning | vörulistar & myndir | bréf til söluaðila


Sniðgöngum ísraelskar vörur

Margir hafa að undanförnu haft samband við Félagið Ísland-Palestína og spurt hvort ekki standi til að vera með sniðgönguátak gegn ísraelskum vörum. Greinarhöfundur hefur síðastliðið ár farið í verslanir ásamt fleirum og kannað úrvalið. Hér er hægt að sjá nöfn og myndir af flestum þeim vörum sem fundust.

Þær ísraelsku vörur sem helst standa almenningi til boða í verslunum eru landbúnaðarvörur, t.d. avókadó og greipaldin. Varast ber að þær vörur sem merktar eru „Palestinian Produce“eða jafnvel „Product of Palestine“eru oftar en ekki framleiddar af ísraelskum landtökumönnum á herteknu svæðunum en ekki Palestínumönnum, og er því um ísraelska vöru að ræða. Dæmi um slíkt eru Coral-jarðarber sem voru um tíma seld í verslunum 10–11, 11–11 og í Bónus. Auk þessa hefur Ölgerðin Egill Skallagrímsson flutt inn léttvín frá Ísrael sem seld eru í ÁTVR. Dæmi um þau eru Golan-rauðvín, sem eru framleidd á hinum herteknu Gólanhæðum. Samkvæmt upplýsingum frá Agli Skallagrímssyni eru fleiri tegundir frá Ísrael væntanlegar á markað.

Einnig vekur athygli að samkvæmt tölum Hagstofu Íslands er árlega fluttur inn til landsins fjarskipta- og tæknibúnaður frá Ísrael fyrir tugi milljóna kóna. Þau fyrirtæki sem byggja fjarskiptakerfi sín að hluta á búnaði frá Ísrael eru Lína.net (Loftnet Línu.net) og Landssími Íslands (RAD háhraðamódem, o.fl.). Í sumum tilvikum er notandanum látinn í té ísraelskur búnaður frá þjónustuaðila kaupi hann þjónustu hans, þetta á til að mynda við um Loftnet Línu.Nets.

Ég hvet félagsmenn til að vera á varðbergi og kaupa ekki ísraelskar vörur. Þeir sem frétta af ísraelskum vörum í umferð sem ekki er getið um hér er bent á að hafa samband við höfund í tölvupósti svo hægt sé bæta þeim á sniðgöngusíðu félagsins. Oft er hægt að þekkja ísraelskar vörur á því að vörunúmerið (undir strikamerkinu) byrjar á 729. Einnig er hægt að skrifa forsvarsmönnum viðkomandi verslana kurteisislegt bréf þar sem þeir eru hvattir til að hætta sölu á ísraelskum vörum.


Einar Örn Eiðsson

electronic intifada

This webpage uses Javascript to display some content.

Please enable Javascript in your browser and reload this page.

sniðganga | hlekkir

>> Bojkott Israel (NO)
>> Bojkotta Israel (SE)
>> Big Campaign (UK)
>> Boycott Israeli Goods (USA)
>> Boycott Israel to end the Military Occupation of Palestine

auglýsing



WWW Palestina.is

Google
© Félagið Ísland-Palestína 2007 - palestina@palestina.is