Sjálfboðaliðastarf í Palestínu
Síðan í apríl árið 2002 hafa tæplega þrjátíu Íslendingar haldið til Palestínu á vegum Félagsins Ísland-Palestína sem sjálfboðaliðar. Sjálfboðaliðastarfið hefur smátt og smátt orðið æ mikilvægari þáttur í starfsemi félagsins, og hafa flestir þessara sjálfboðaliða fengið ferðastyrki frá félaginu. Talsverður undirbúningur fylgir ferð sem þessari, og hafa stjórnarmeðlimir í félaginu annast þann undirbúning með aðstoð eldri sjálfboðaliða.
Tilgangurinn með sjálfboðastarfi á hernumdu svæðunum er þríþættur:
1. Að leggja hönd á plóg í starfi þeirra samtaka sem sjálfboðaliðinn vinnur með hverju sinni. Sjálfboðaliðar hafa hjálpað palestínskum bændum við ólífutínslu og önnur landbúnaðarstörf, annast enskukennslu í æskulýðsmiðstöð og tekið þátt í að dreifa lyfjum í hús með læknishjálparsamtökum.
2. Að veita vernd með nærveru sinni. Óháð því hvaða störfum erlendir sjálfboðaliðar gegna hverju sinni hafa þeir ávallt jákvæð áhrif með nærveru sinni. Einstaklingur með erlent vegabréf og erlent útlit hefur hamlandi áhrif á framferði Ísraelshers, sem liggur eins og mara á daglegu lífi Palestínumanna. Það er margsannað að her og landnemar á hernumdu svæðunum fara síður fram með offorsi þegar útlendingar eru til vitnis. Þannig getur t.d. sjálfboðaliði sem fylgir sjúkrabíl á daglegum ferðum sínum forðað starfsfólki bílsins frá óþarfa töfum, handtökum, líkamsleit og árásum.
3. Að vera til frásagnar. Mikilvægur liður í starfi sjálfboðaliða er að segja frá reynslu sinni þegar heim til Íslands er komið, og ekki síður á meðan á dvölinni stendur. Fjölmiðlar hafa nær undantekningarlaust haft samband við sjálfboðaliða Félagsins Ísland-Palestína á meðan þeir hafa starfað á hernumdu svæðunum. Sömuleiðis hafa sjálfboðaliðar komið fram á fundum félagsins, veitt lengri viðtöl í blöðum og skrifað greinar um reynslu sína eftir að heim er komið. Þetta er þáttur í starfinu sem ekki má vanmeta, því bein reynsla fólks af ástandinu hefur mun meiri áhrif og segir meiri sögu en hefðbundinn fréttaflutningur fjölmiðla af Palestínudeilunni.
Félagið mælist til þess að sjálfboðaliðar dvelji ekki skemur en í tvær til þrjár vikur í ferð sinni. Reynslan sýnir að skemmri dvöl en svo skilar takmörkuðum árangri, m.a. vegna þess að það tekur ávallt ákveðinn tíma að aðlagast aðstæðunum. |