Neyðarsöfnun Félagsins
Ísland-Palestína
Neyðarsöfnun Félagsins Ísland-Palestína
hófst fljótlega eftir að síðari uppreisn
Palestínumanna gegn hernáminu hófst, eða
í nóvember árið 2000. Snemma árs
2005 höfðu um fimm miljónir safnast. Aðallega
er um að ræða frjáls framlög einstaklinga
inn á bankareikning eða í merkt söfnunarílát.
Meirihluta söfnunarfjárins hefur
verið varið til að styrkja Læknishjálparnefndirnar
(UPMRC) sem eru palestínsk grasrótarhreyfing undir
forystu læknisins Mustafa Barghouti, sem er Íslendingum
að góðu kunnur. Einnig hafa tvö sjúkrahús,
geðhjálparverkefni fyrir börn og nú síðast
stofnun blindrabókasafns verið styrkt myndarlega
sjá Stuðningsverkefni.
Að auki hafa 13 sjálfboðaliðar
fengið ferðastyrk til að dvelja og veita hjálp
á hernumdu svæðunum í 14 vikur hver.
Sjálfboðaliðar hafa með nærveru sinni freistað
þess að bjarga mannslífum og hindra limlestingar
og að hús saklausra borgara væru jöfnuð
við jörðu.
Neyðarsöfnunin er alfarið rekin
í sjálfboðavinnu. Kostnaður við hana er
nánast enginn og fullvíst að hver króna
kemst í réttar hendur. Ríkisstjórn Íslands,
Rauði krossinn og Þjóðkirkjan veittu Palestínumönnum
stuðning fyrir allmörgun árum en hafa síðan
haldið að sér höndum þar til árið
2004 að heilbrigðisráðherra veitti hálfrar
milljón króna styrk til að fjármagna hreyfanlega
heilsugæslustöð á vegum Læknishjálparnefndanna.
Neyðarsöfnunin til Palestínu
heldur áfram. Allir eru hvattir til að taka þátt
í henni og leggja svo sem 5000 kr. inn á reikning
okkar. Þeir sem njóta greiðsluþjónustu
banka geta látið leggja vissa upphæð inn á
reikninginn mánaðarlega sjá Þitt
framlag.
|