| fréttir | eldri fréttir |
Kraftaverk á Gaza - Fótalaus kom gangandi heim
28.05.2008 Hópur á vegum O.K. Prosphetics og Félagsins Ísland-Palestína er nú staddur á Gaza svæðinu, í þeim tilgangi að gefa og setja gervilimi á fólk sem misst hefur fætur í árásum Ísraelshers á svæðið. Neyðarsöfnun Félagsins Ísland-Palestína fyrir Gaza greiðir fyrir efniskostnað gervilimanna, en O.K. Prosphetics, Össur Kristjánsson og allir aðrir sem koma að þessu sameiginlega verkefni FÍP og O.K. Prosthetics gefa vinnu sína og standa fyrir ferðakostnaði sínum sjálf/ir. Meira... |
Hverfandi Palestína (kort) / Hamas + Gaza (upplýsingar)
24.05.2008 Upplýsingatexti og kort sem var á forsíðu Palestina.is frá áramótum 2008/09. Kortið sýnir hvernig land Palestínumanna hefur síðustu áratugi verið tekið af þeim. Stuttir upplýsingatextar um hverfandi Palestínu, Gaza svæðið og og Hamas samtökin. Meira... |
Mótmælafundur í Háskólabíói á sunnudaginn
- Þjóðarsamstaða gegn fjöldamorðunum á Gaza
17.01.2008 Fjölmörg félagasamtök, stjórnmálahreyfingar og fjöldasamtök gangast fyrir mótmælafundi í Háskólabíói sunnudaginn 18. janúar undir kjörorðinu; Þjóðarsamstaða gegn fjöldamorðunum á Gaza. Fjölbreytt dagskrá. Fundurinn hefst kl 15.00. Meira... |
Viltu gerast félagsmaður í Félaginu Ísland-Palestína?
17.01.2008 Félagið Ísland-Palestína hvetur þá sem vilja sýna íbúum hertekinnar Palestínu stuðning í verki, og eru sammála lögum og markmiðum félagsins, til að ganga til liðs við félagið. Með því að ganga í Félagið Ísland-Palestína ertu styðja við mannréttindarbaráttu palestínsku þjóðarinnar, kröfuna um að hernámi Palestínu linni í samræmi við ályktanir Sameinuðu þjóðanna og Palestínumenn fái lífvænlegt, sjálfstætt og fullvalda ríki. Meira... |
Opinn fundur á Iðnó, Laugardaginn 10. janúar
09.01.2008 Opinn fundur á Iðnó vegna fjöldamorðanna á Gaza fer fram í Iðnó, augardaginn 10. janúar kl 16.00. Þóra Karítas Árnadóttir, leikkona, segir frá lífi og starfi bandaríska friðarsinnans Rachel Corrie, óra Karítas Árnadóttir, leikkona, segir frá lífi og starfi bandaríska friðarsinnans Rachel Corrie, Karl Blöndal, aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins og Steinunn Stefánsdóttir, aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins, flytja ræður, Bubbi Morthens flytur nokkur lög o.fl. Meira... |
Neyðarsöfnun fyrir Gaza
09.01.2008 Heimurinn horfir nú upp á grimmúðleg illvirki þar sem með ofurefli er níðst á varnarlausum palestínskum íbúum eins þéttbýlasta svæði heims, sem eru lokaðir inni og geta hvergi flúið af svæðinu sem breytt hefur verið í risafangelsi. Félaginu hefur borist neyðarbeiðni frá ísraelsku samtökunum Physicians for Human Rights þar sem beðið er um aðstoð við kaup á þeim nauðsynjum sem spítalar á Gaza hafa óskað eftir, svo sem lyfjum, rúmum, súrefni og sótthreinsuðum áhöldum. Meira... |
Yfirlýsing vegna Gaza 8 janúar 2008
08.01.2008 Mótmælafundur við bandaríska sendiráðið 8. janúar 2009 fordæmir harðlega stuðning Bandaríkjastjórnar við árásarstríð Ísraels gegn íbúum Gazasvæðisins. Heimurinn horfir nú upp á grimmúðleg illvirki Ísraelshers sem beitir bandarískum vígbúnaði og hernaðartækni. Meira... |
Mótmælafundur við sendiráð Bandaríkjanna
08.01.2008 Sýnum samstöðu - Stöðvum fjöldamorðin.Félagið Ísland Palestína efnir til mótmælafundar við sendiráð Bandaríkjanna að Laufásvegi 21 fimmtudaginn 8. janúar klukkan 17:00, þar sem stuðningi ríkisstjórnar Bandaríkjanna við fjöldamorðin á Gaza svæðinu verður mótmælt.Meira... |
Útifundur á Lækjartorgi, þriðjudag 30. desember kl. 16
29.12.2008 Stöðvið fjöldamorð Ísraelshers á Gaza. Útifundur til að mótmæla blóðsúthellingum á Gaza fer fram á Lækjartorgi, þriðjudaginn 30. desember kl. 16.00. Ræðumenn eru María S. Gunnarsdóttir, formaður MFÍK, Ögmundur Jónasson, alþingismaður og Sr. Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur. Fundarstjóri er Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands. Meira... |
Stöðvið blóðbaðið á Gaza - Yfirlýsing FÍP
29.12.2008 Yfirlýsing samþykkt af stjórn Félagsins Ísland-Palestína sunnudaginn 28. desember og send til fjölmiðla, stjórnmálaflokka og félagasamtaka. Við krefjumst þess að Ísraelstjórn stöðvi fjöldamorðin á Gaza þegar í stað. Við krefjumst þess að umsátrinu um Gaza verði nú þegar aflétt. Við krefjumst þess að hernámi Ísraels á palestínsku landi linni. Meira... |
Hvað er að gerast á Gaza?
28.12.2008 Árásir standa nú yfir á borgir og flóttamannabúðir á Gaza svæðinu, einu þéttbýlasta svæði heims. Það er ljóst að laugardagurinn 27. desember var blóðugasti dagur ísraelska hernámsins á Vesturbakkanum og Gaza, sem nú hefur staðið í rúma fjóra áratugi. Greinar og yfirlýsingar sem varpa e.t.v. ljósi á það sem er að gerast á Gaza. Meira... |
Samstöðufundur með Palestínu, 29. nóvember
28.11.2008 Dagurinn 29. nóvember er alþjóða samstöðudagur að undirlagi Sameinuðu þjóðanna til stuðnings réttindabaráttu palestínsku þjóðarinnar. Félagið Ísland-Palestína hefur ár hvert tekið þátt í átaki SÞ og gengst nú fyrir samstöðufundi á laugardaginn í MÍR-salnum, Hverfisgötu 105. Fundurinn hefst kl. 17 og allir velkomnir. Meira... |
Kvikmyndasýning í Friðarhúsi, sunnudaginn 16. nóvember
14.11.2008 Félagið Ísland-Palestína stendur fyrir fundi og kvikmyndasýningu í Friðarhúsi, Njálsötu 87, sunnudaginn 16. nóvember. Tilefnið er alþjóðavika gegn Aðskilnaðarmúrnum sem verið er að reisa í Palestínu í trássi við alþjóðalög og samþykktir Sameinuðu þjóðanna. Dagskrá fer fram víða um heim í tengslum við vikuna. Meira... |
Opinn fundur á Selfossi, 30. október
28.10.2008 Félagið Ísland-Palestína stendur fyrir opnum fundi í Sunnlenska bókakaffinu, Selfossi, fimmtudaginn 30. október. Þar munu Egill Bjarnason og Yousef Ingi Tamimi, sem störfuðu sem sjálfboðaliðar á Vesturbakka Palestínu í sumar, vera með fyrirlestur og svara fyrirspurnum. Fundurinn hefst klukkan 20.00. Meira... |
Opinn fundur í Háskóla Íslands - Fimmtudaginn 23. okt
21.10.2008 Sumarið 2008 störfuðu 5 íslenskir sjálfboðaliðar á Vesturbakkanum á vegum Félagsins Ísland-Palestína. Þrír unnu með palestínsku læknishjálparnefndunum (PMRS) og tveir hjá Project Hope. Sjálfboðaliðarnir munu deila reynslu sinni á opnum fundi í Háskóla Íslands (Árnagarði, stofu 311), fimmtudaginn 23. október 2008. Fundurinn hefst kl. 20.00. Allir velkomnir. Meira... |
Fögnum komu palestínska flóttafólksins
07.09.2008 Miðvikudagskvöldið 24. september kl. 20.00 standa Félagið Ísland-Palestína og Félag múslima á Íslandi fyrir kaffisamsæti í húsnæði Rauða krossins á Akranesi, til að fagna palestínska flóttafólkinu sem var að koma til landsins. Lagt verður af stað frá bílastæði Össurar við Vesturlandsveg (rétt innan við Shell-stöðina) kl 19.15 og raðar fólk sér þar saman í bíla eftir því sem þörf krefur. Meira... |
Bókasafn félagsins til útláns á Kaffi Hljómalind
07.09.2008 Félagið Ísland-Palestína í samvinnu við bókasafn Andspyrnu í Kaffi Hljómalind býður nú upp á útlán á fjölda athyglisverða bóka er hafa með málefnu Palestínu og Ísraels að gera. Við hvetjum félagsmenn sem aðra til að kynna sér úrvalið, af nógu er að taka. Útlán eru ókeypis og safnið er öllum opið á opnunartíma Kaffi Hljómalindar (Laugavegi 23); mán.- föst. 9-23, laug. 11-23 og sun. 11-18. Meira... |
Sex sjálfboðaliðar í Palestínu
05.09.2008 Aron Björn Kristinsson, framhaldsskólanemi frá Reykjavík, hélt á dögunum til Jenin á Vesturbakkanum á vegum félagsins Ísland-Palestína. Þar mun hann starfa við enskukennslu og fleira fyrir hjálparsamtökin Project hope næstu fjóra mánuðina. Aron er sjötti íslenski sjálfboðaliðinn sem leggur sitt af mörkum á Vesturbakkanum í sumar. Anna Tómasdóttir, Einar Teitur Björnsson, Stefán Ágúst Hafsteinsson, Yousef Ingi Tamimi og Gunnar Pétursson hafa öll upplifað ástandið frá fyrstu hendi. Meira... |
Skyndihjálparbæklingur fjármagnaður
29.08.2008 Neyðarsöfnun Félagsins Ísland-Palestína hefur með 170.000 framlagi fjármagnað prentun skyndihjálparbæklings sem ætlað er konum í þorpum á Nablus svæði Vesturbakka Palestínu. Anna Tómasdóttir, hjúkrunafræðinemi, hafði veg og virðingu að gerð bæklingsins. Hún er nýkomin heim úr 3 mánaða dvöl í Palestínu þar sem hún starfaði sem sjálfboðaliði á vegum félagsins. Meira... |
Tónleikar fyrir Palestínu, fimmtudaginn 10. júlí á Organ
09.07.2008 Tónleikar fyrir Palestínu fara fram á Organ, Hafnarstræti 1-3 (bakhús, fimmtudaginn 10. júlí. Meðal þeirra sem koma fram eru Morðingjarnir, sem nýlega gáfu út sína aðra breiðskífu 'Áfram Ísland', og Viðurstyggð. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.00. Enginn aðgangseyrir en frjáls framlög renna til palestínskra flóttamanna. Meira... |
Fjórir íslenskir sjálfboðaliðar á herteknu svæðunum
13.06.2008 Fjórir Íslendingar héldu til Palestínu í síðustu viku til starfa sem sjálfboðaliðar á herteknu svæðunum á vegum Félagsins Ísland-Palestína. Einn hjúkrunarnemi ogtveir læknisfræðinemar við Háskóla Íslands og menntskælingur við Kvennaskólan í Reykjavík starfa nú með Project Hope og Palestínsku læknahjálparnefndunum (Palestinian Medical Relief Society - PMRS) í Nablus og víðar um Vesturbakkanum. Meira... |
60 ára hernámi Palestínu minnst á Kaffi Reykjavík, 15. maí
12.05.2008 Félagið Ísland-Palestína stendur að opnum fundi á Kaffi Reykjavík fimmtudagskvöldið 15 maí kl. 19:30 undir yfirskriftinni; NAKBA - 60 ára hernám Palestínu - saga hörmunga, landflótta, hernáms og andspyrnu. Ræður flytja Jón Baldvin Hanniballson fyrrverandi ráðherra og Salmann Tamimi tölvunarfræðingur. Heimildarmynd eftir breska blaðamanninn John Pilger sýnd. Aðgangur ókeypis og öllum opin. Meira... |
Lífleg menningardagskrá í Kaffi Hljómalind, 17. maí
12.05.2008 Laugardaginn 17. maí verður lífleg menningardagskrá og fjársöfnun á Kaffi Hljómalind til að minnast 60 ára hernámi Palestínu. Á boðstólum verður arabískur matur, tónlist, sýning heimildarmyndarinnar frábæru Route 181 og sitthvað fleira. Dagskráin hefst klukkan 19:00 og er öllum opin. Meira... |
Rúmlega hundrað þúsund krónur safnast 1. maí
10.05.2008 Líkt og undanfarin ár stóð Félagið Ísland-Palestína fyrir neyðarsöfnun til handa Palestínu 1. maí. Félagar í félaginu voru með merktar söfnunarfötur og bauka í 1. maí göngunni í Reykjavík og við ræðuhöld á Ingólfstorgi. Um
120.000 krónur söfnuðust og hefur verið ákveðið að féð renni til Gaza Mental Health Program. Meira... |
Erindi í Friðarhúsi 23. apríl
22.04.2008 Vekjum athygli á eftirfarandi erindi sem fram fer í Friðarhúsinu Miðvikudagskvöldið 23. apríl. Þar munu Rósa Eyvindardóttir og Vésteinn Valgarðsson flytja erindi í Friðarhúsi um nýafstaðna ferð sína til Egyptalands þar sem þau sóttu 6. Cairo-ráðstefnuna um lýðræði og frið í Mið-Austurlöndum. Meðal helstu viðfangsefna ráðstefnunnar voru málefni Palestínu og zíonismi, heimsvaldastefna Bandaríkjanna í Írak og víðar, stjórnmálaástandið og stéttabaráttan í Egyptalandi, ímynd Mið-Austurlanda í vestrænum fjölmiðlum og fleira.. Meira... |
Styrktartónleikar sumardaginn fyrsta í Neskirkju
22.04.2008 Tónleikar til styrktar tónlistarstarfi palestínskra barna í Balata flóttamannabúðunum á Vesturbakkanum verða haldnir sumardaginn fyrsta (fimmtudaginn, 24. apríl) í Nesskirkju. Einleikarar á tónleikunum verða Bryndís Halla Gylfadóttir (selló) og Víkingur Heiðar Ólafsson (píanó). Auk þeirra leikur kvartett skipaður Arngunni Árnadóttur (klarinett), Hákoni Bjarnasyni (píanó), Huldu Jónsdóttur (fiðla) og Karli Jóhanni Bjarnasyni (selló). Meira... |
Kvikmyndin Private sýnd í Alþjóðahúsinu í kvöld, kl. 20.00
01.04.2008 Félagið mun í vetur standa fyrir sýningum á athyglisverðum heimildar- og bíómyndum er hafa með málefni Palestínu og Ísraels að gera, fyrsta þriðjudag hvers mánaðar í Alþjóðahúsinu. Í febrúar sýndum við hina margverðlaunuðu heimildarmynd Occupation 101 og í síðasta mánuði var heimildarmynd um raunir palestínska landsliðsins í knattspyrnu, Goal Dreams - A Team Like No Other, á boðstólum. Nú sýnum við hins vegar leikna mynd, Private, sem hlotið hefur fjölda verðlauna og viðurkenninga. Meira... |
Aðalfundur FÍP í Norræna húsinu, 30. mars kl. 17:00
21.03.2008 Aðalfundur Félagsins Ísland-Palestína verður haldin í Norræna húsinu, sunnudaginn 30. mars klukkan 17.00. Á dagskrá er, auk venjulegra aðalfundarstarfa, ræða Þorbjargar Sveinsdóttur laganema sem segir frá nýlegri sjálfboðaferð um Vesturbakkann. Svavar Knútur trúbador
flytur lög eftir sig og Bergþóru Árnadóttur. Á fundinum verður stjórn félagsins fyrir komandi starfsár kjörinn. Meira... |
Stöðvum fjöldamorðin - Útifundur á Lækjartorgi á morgun, miðvikudaginn 5. mars, klukkan 12:15
04.03.2008 Efnt verður til útifundar á Lækjartorgi í hádeginu á morgun, miðvikudaginn 5. mars klukkan 12:15, til að mótmæla blóðbaðinu á Gazaströnd. Kröfur dagsins eru: Stöðvum fjöldamorðin og rjúfum umsátrið um Gaza. Ræðumenn verða Katrín Fjeldsted læknir og Ögmundur Jónasson alþingismaður. Fundarstjóri er Sveinn Rúnar Hauksson formaður Félagsins Ísland-Palestína. Meira... |
Goal Dreams sýnd í Alþjóðahúsinu, þriðjudaginn 4. mars
01.03.2008 Hvernig getur fótboltalið, sem hefur ekki viðurkennt heimaland, engan stað til að þjálfa á og býr við hörmulegar aðstæður, keppt í knattspyrnu á alþjóðavettvangi? Félagið Íslands-Palestína mun í vetur standa fyrir sýningum á athyglisverðum heimildar- og bíómyndum er hafa með málefni Palestínu og Ísraels að gera, fyrsta þriðjudag hvers mánaðar í Alþjóðahúsinu. Að þessu sinni verður á boðstólum heimildarmyndin 'Goal Dreams - A Team Like No Other'. Meira... |
Bíósýning í Alþjóðahúsinu, þriðjudaginn 5. febrúar
04.02.2008 Félagið Íslands-Palestína mun í vetur standa fyrir sýningum á athyglisverðum heimildar- og bíómyndum er hafa með málefni Palestínu og Ísraels að gera. Sýningarnar verða fyrsta þriðjudag hvers mánaðar í Alþjóðahúsinu og er það hin margverðlauna heimildarmynd Occupation 101 sem er fyrst í sýningarröðinni. Hvetjum félagsmenn sem aðra til fjölmenna á fyrstu sýninguna. Aðgangur ókeypis! Meira... |
Sýning - Ferð án endurkomu
20.01.2008 Félagið Ísland-Palestína bendir félagsmönnum á athyglisverða myndistarsýningu sem nú stendur yfir í Gallerí Start Art, Laugavegi 12. Myndlistarkonan Sigrid Valtingojer sýnir þar grafíkmyndaröð sem kallast Ferð án endurkomu ásamt teikningum og textum úr dagbókum hennar. Sýningin er innblásin af ferð Sigridar til Palestínu sem sjálfboðaliði árið 2002. Meira... |
Opinn fundur með Ali Zbeidat í Alþjóðahúsinu, 5. janúar
27.12.2007 Opinn fundur verður með aktivistanum og blaðamanninum Ali Zbeidat í Alþjóðahúsinu laugardaginn 5. janúar 2008, klukkan 14:00. Ali Zbeidat er Palestínumaður búsettur í Sakhnin, sem nú liggur innan landamæra Ísraelsríkis. Hann hefur í áraraðir barist fyrir mannréttindum Palestínumanna innan landamæra Ísraels (sem stundum eru kallaðir ísraelskir arabar) og er fyrrum pólitískur fangi. Meira... |
Þorláksmessusala fyrir íbúa Palestínu á Laugaveginu
21.12.2007 Á Þorláksmessu mun félagið standa fyrir sölu á varningi til styrktar íbúum Palestínu á Laugaveginum frá klukkan 14:00 og fram á kvöld. Þar verður í boði palestínsk ólífuolía í sérstökum gjafaumbúðum, klútar frá Hebron, Frjáls Palestína peysur, bolir, nælur og geisladiskar. Tilvalið að versla hér jólagjafir sem láta gott af sér leiða, fyrir þá sem búa við hernám og hörmungar í Landinu helga. Meira... |
Árleg Þorláksmessusala félagsins - Aðstoð óskast
11.12.2007 Líkt og undanfarin ár mun Félagið Ísland-Palestína standa fyrir sölu á varningi til styrktar íbúum Palestínu á Laugaveginum á Þorláksmessu. Þar verður í boði palestínsk ólífuolía í sérstökum gjafaumbúðum, klútar, Frjáls Palestína peysur, bolir, nælur og geisladiskar - og að öllum líkindum kaffi og kakó. Allur ágóði af sölunni rennur í Neyðarsöfnun til handa íbúum hertekinnar Palestínu. Ef þú getur lagt hönd á plóg og hjálpað til við söluna hafðu endilega samband; palestina@palestina.is. Meira... |
Nýtt tölublað Frjálsrar Palestínu komið út
10.12.2007 Annað tölublað Frjálsrar Palestínu, málgagni Félagsins Ísland-Palestína, er komið út. Blaðinu var dreift til félagsmanna í síðasta mánuði og er nú komið á vefinn. Meðal efnis eru greinar eftir Magnús Þorkel Bernhardsson, sérfræðing í málefnum Mið-Austurlanda, Katrínu Fjelsted og Jón Magnússon alþingismenn, ísraelska rithöfundinn og friðarsinnann Uri Avnery og Magnús Stephensen sem starfaði nýlega sem sjálfboðaliði í Palestínu. Meira... |
Félagið 20 ára, vel heppnaður afmælisfundur
10.12.2007 Félagið Ísland-Palestína var stofnað fyrir 20 árum, eða þann 29. nóvember 1987. Í tilefni tímamótanna stóð félagið fyrir veglegum afmælisfundi í Norræna húsinu þar sem hljómsveitin Bardukha lék ásamt dúettinum Picknick, Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hélt ávarp, Sveinn Rúnar Hauksson fór yfir sögu félagsins og ástandið í dag og stutt heimilarmynd frá ferð hans um Gaza og Vesturbakkan varsýnd. Meira... |
20 ára afmælisfundur Félagsins Ísland-Palestína
- Norræna húsið, fimmtudaginn 29. nóvember
26.11.2007 Félagið Ísland-Palestína var stofnað 29. nóvember 1987. Fimmtudaginn 29. nóvember verða því 20 ár síðan félagið var stofnað og verður þeim tímamótum fagnað með afmælisdagskrá í Norræna húsinu. Meðal gesta verða Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra og Ingibjörg Haraldsdóttir skáld. Húsið opnar klukkan 19:30, en fundurinn hefst stundvíslega klukkan 20:00. Allir velkomnir. Meira... |
Alþjóðlegur baráttudagur gegn Aðskilnaðarmúrnum
09.11.2007 Í dag, 9. nóvember, er á alþjóðlegur baráttudegur gegn Aðskilnaðarmúrnum sem verið er að reisa á palestínsku herteknu svæðunum þvert á samþykktir Sameinuðu þjóðanna og úrskurð Alþjóðadómstólsins í Haag. Þúsundir Palestínumanna hafa þegar misst lífsviðurværi sitt í kjölfar byggingu múrsins sem einangrar palestínskar byggðir og rænir ræktarlandi þeirra. Meira... |
Sveinn Rúnar Hauksson í Palestínu
09.11.2007 Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og formaður Félagsins Ísland-Palestína, er staddur á herteknu svæðunum í Palestínu. Sveinn hélt út þann 31. október og hefur á síðustu dögum heimsótt og dvalið í Balata flóttamannabúðunum, Nablus, Jenin, Hebron, Bethlehem, Ramallah og Austur-Jerúsalem á Vesturbakkanum. Meira... |
Opinn fundur: Hvað er að gerast í Palestínu?
29.09.2007 Opinn fundur verður haldinn í fundarsal Blindrafélagsins, Hamrahlíð 17, sunnudaginn 30. september kl. 15.00. Ziad Amro flytur ávarp. Ziad er félagsráðgjafi frá Hebron, stofnandi Öryrkjabandalags Palestínu og baráttumaður fyrir mannréttindum fólks með fatlanir.Jón Magnússon alþingismaður og Ævar Kjartansson útvarpsmaður segja frá ferðum sínar til hertekinnar Palestínu og Ísraels og sýna myndir. Meira... |
Tónleikar fyrir Palestínu - Fimmtudaginn 20. sept. á Organ
16.09.2007 Tónleikar fyrir Palestínu fara fram á Organ, Hafnarstræti 1-3, fimmtudaginn 20. september. Þar koma fram hljómveitirnar I Adapt, Skátar, Retro Stefson, For a Minor Reflection og >3 Svanvhít. Húsið opnar klukkan 20:30 og hefjast tónleikarnir klukkan 21:00. Aðgangseyrir er 500 krónur og rennur allur ágóði til Neyðarsöfnun Félagsins Ísland-Palestína til handa íbúum Palestínu. Meira... |
Matur & menning - Fimmtudaginn 14. júní
10.06.2007 Félagið Ísland-Palestína heldur palestínskt matar- og menningarkvöld fimmtudaginn 14. júní næstkomandi. Þríréttuð palestínsk máltíð verður á boðstólum ásamt myndasýningu, ljóðalestri og fleiru. Kvöldið hefst klukkan 19:00 og fer fram í Kebabhúsinu, Grensásvegi 3. Nauðsynlegt að tilkynna komu sína á kvöldið með skráningu í gegnum síma eða tölvupóst; palestina@palestina.is) fyrir kl. 12:00 miðvikudaginn 13. júní. Meira... |
Dagskrá í Friðarhúsinu 9. júní kl 14.00 - helguð 40 ára hernámi Palestínu og alþj. baráttudegi gegn Aðskilnaðarmúrnum
07.06.2007 Félagið stendur fyrir dagskrá í Friðarhúsinu, Njálsgötu 87, laugardaginn 9. júní helguð hernámi Palestínu og Aðskilnaðarmúrnum sem þar er verið að reisa. Dagurinn er alþjóðlegur baráttudagur gegn Aðskilnaðarmúrnum, sem verið er að reisa á herteknu palestínsku landi í trássi við alþjóðalög. Þess verður einnig minnst að 40 ár eru liðin frá Sex daga stríðinu og upphafi hernáms Vesturbakkans og Gazastrandarinnar, hernáms sem varir enn. Meira... |
Sjálfboðaliði frá Íslandi varð fyrir barsmíðum í Palestínu
22.05.2007 Ortrud Gessler Guðnason, sjálfboðaliði á vegum Félagsins Ísland-Palestína, varð fyrir barsmíðum í árás landtökumanna á alþjóðlega sjálfboðaliða í hertekinni Palestínu í fyrradag. Árásin átti sér stað í Hebron, þar sem Ortrud hefur starfað við mannúðarmál síðustu vikur, m.a. við að fylgja börnum í skólan gegnum vegatálma og hindranir landtökufólks og ísraelska hernámsliðsins. Meira... |
Yfir hálf milljón safnast í neyðarsöfnun
22.05.2007 Rúmlega 550.000 krónur hafa safnast í neyðarsöfnun fyrir Palestínu frá því nýtt söfnunarátak félagsins hófst þann 1. maí. Um 180.000 krónur söfnuðust við 1. maí hátíðarhöld í Reykjavík og daganna þar á eftir í framlögum frá einstaklingum inn á reikning félagsins. Tæplega 260.000 söfnuðust á sextugsafmæli Sveins Rúnars Haukssonar, formanns félagsins, og síðustu viku hafa rúmlega 110.000 krónur borist frá einstaklingum í neyðarsöfnunina. Meira... |
Ísland fjármagnar færanlega sjúkrastöð í Palestínu - einróma samþykkt Alþingis
21.05.2007 Alþingi hefur einróma samþykkt tillögu utanríkisnefndar um að fjármagna kaup og rekstur á færanlegri sjúkrastöð í Palestínu. Tillagan var samþykkt með 55 atkvæðum, 8 þingmenn voru fjarverandi. Það var Jónína Bjartmarz, þingmaður Framsóknarflokksins, sem flutti þessa tillögu upphaflega sem fyrsti flutningsmaður ásamt þingmannahópi sem ferðaðist til Palestínu um páskaleytið 2005. Meira... |
Íslensk stjórnvöld ekki enn viðurkennt þjóðstjórn Palestínu
13.05.2007 Þrátt fyrir yfirlýsingar Valgerðar Sverrisdóttur utanríkisráðherra um að hún myndi leggja til að eðlileg samskipti yrðu tekin upp við lýðræðislega kjörna þjóðstjórn í Palestínu - hafa íslensk stjórnvöld ekki enn tekið af skarið. Málið virðist ekki hafa verið tekið upp í ríkisstjórn vegna "meldinga" úr forsætisráðuneytinu ef marka má ummæli Valgerðar í fréttum. Meira... |
Áskorun til ríkisstjórnarinnar
10.05.2007 Félagið Ísland-Palestína áréttar ályktun aðalfundar félagsins frá 21. mars 2007 og skorar á ríkisstjórnina að viðurkenna þegar í stað þjóðstjórn Palestínumanna á herteknu svæðunum. Í ályktunninni segir m.a: "Það er smánarblettur á Vesturlöndum að hafa fylgt Ísraelsstjórn í því að refsa Palestínumönnum fyrir að hafa kosið öðru vísi en þessum stjórnvöldum líkar. Sigur Hamas-samtakanna í kosningunum var enn ein tylliástæðan fyrir Ísrael til að einangra palestínsk stjórnvöld." Meira... |
Um sjálfboðaliðastörf í Palestínu
10.05.2007 Á hverju ári lætur fjöldi Vesturlandabúa gott af sér leiða í Palestínu. Félagið Ísland-Palestína hefur í áraraðir haft milligöngu í sjálfboðaliðastörfum ytra. Egill Bjarnason, nýskipaður sjálfboðaliðastjóri félagsins, hefur tekið saman upplýsingatexta og yfirlit yfir hjálparsamtök fyrir þá sem hafa áhuga á sjálfboðaliðastörfum í Palestínu. Meira... |
Utanríkisráðherra boðar eðlileg samskipti við Palestínustjórn
20.04.2007 Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra mun á næstu dögum leggja til að tekin verði upp „eðlileg samskipti" við heimastjórn Palestínumanna. Það eru góð tíðindi og gleðileg sumarkveðja að taka eigi upp eðlileg samskipti við þjóðstjórn Palestínumanna. Einangrun Palestínu sem Ísraelsstjórn hefur tekist að viðhalda með stuðningi Bandaríkjastjórnar og Vesturlanda er ómannúðleg og ólýðræðisleg og hefur leitt til stöðugt versnandi ástands á herteknu svæðunum. Það er því afar mikilvægt að rjúfa hana. Meira... |
Félagið Ísland-Palestína skorar á íslensk stjórnvöld
að viðurkenna þjóðstjórn Palestínumanna
01.04.2007 Á aðalfundi Félagsins Ísland-Palestína, sem haldinn var í Norræna húsinu þann 21. mars 2007, var samþykkt ályktun þar sem skorað er á íslensk stjórnvöld að fylgja fordæmi norsku ríkisstjórnarinnar og viðurkenna þjóðstjórn Palestínumanna. Í ályktuninni segir m.a. "það er smánarblettur á Vesturlöndum að hafa fylgt Ísraelsstjórn í því að refsa Palestínumönnum fyrir að hafa kosið öðru vísi en þessum stjórnvöldum líkar." Síðan hún var samþykkt hafa Svíar fylgt fordæmi Norðmanna - en engin svör hafa enn borist frá íslenskum stjórnvöldum. Meira... |
Vel heppnaður aðalfundur - ný stjórn kjörinn
31.03.2007 Félagið Ísland-Palestína hélt aðalfund sinn í Norræna húsinu þann 21. mars. Þar var m.a. samþykkt lagabreyting um fjölgun í stjórn úr 5 í 7 aðalmenn í stjórn og í kjölfarið var ný stjórn kosinn. Gjaldkeri félagsins lagði fram ársreikninga, Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, mannfræðingur og framkvæmdarstjóri Amnesty International, grindi frá starfi IA gagnvart Ísrael og Palestínu, Petter Winnberg futti tónlist og Ingólfur Gíslason las ljóð. Meira... |
Aðalfundur Félagsins Ísland-Palestína
- í Norræna húsinu, miðvikudaginn 21. mars, kl. 20:00
17.03.2007 Aðalfundur Félagsins Ísland-Palestína verður haldinn í Norræna húsinu miðvikudaginn 21. mars, klukkan 20:00. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf og verður stjórn félagsins fyrir komandi starfsár kjörinn. Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, mannfræðingur og framkvæmdarstjóri Amnesty International, greinir frá starfi IA gagnvart Ísrael og Palestínu, Petter Winnberg (Hjálmar / Petter & The Pix) flytur nokkur lög og Ingólfur Gíslason (Nýhil) les ljóð. Meira... |
Börnin sem lifa í Beit Hanoun
08.03.2007 Bjarni Þór Sigurbjörnsson, 17 ára ljóðskáld, er höfundur ljóðsins "Börnin sem lifa í Beit Hanoun" sem er tileinkað þeim börnum sem féllu í árásum Ísraelshers á samnefndan bæ á Gaza ströndinni. En ekki aðeins þeim, heldur "heldur öllum börnum sem orðið hafa fórnarlömb stríðsins fyrir botni Miðjarðarhafs, bæði palestínskum og ísraelskum" eins og segir í orðsendingu frá höfundi. Ljóðið er hér með birt í heild sinni á Palestina.is. Meira... |
Opinn fundur og Sófakynslóðin sýnd - Miðv. 7. mars
05.03.2007 Félagið Ísland-Palestína stendur fyrir opnum fundi í Friðarhúsinu (Njálsgötu 87) miðvikudaginn 7. mars. Þar mun Egill Bjarnason segja frá nýlegri ferð sinni til Palestínu og sjálfboðastarfi sínu á herteknu svæðunum í máli og myndum. Sveinn Rúnar Hauksson heldur tölu um dvöl sína í Palestínu og heimildarmyndin Sófakynslóðin, sem m.a. fjallar um starfsemi félagsins, verður sýnd. Meira... |
Erindi framkvæmdarstjóra Flóttamannaaðstoðar fyrir Palestínumenn (UNRWA) - Fimmtudaginn 8. mars í Odda
05.03.2007 Karen Koning AbuZayd, framkvæmdastjóri Flóttamannaaðstoðar SÞ fyrir Palestínumenn (UNRWA), mun halda erindi í Odda, fimmtudaginn 8. mars kl. 16:00. Yfirskrift fundarins er Palestínskir flóttamenn - raunveruleiki og valmöguleikar. Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi standa saman að fyrirlestrinum. Meira... |
Aðalfundur Félagsins Ísland-Palestína, 21. mars
04.03.2007 Aðalfundur Félagsins Ísland-Palestína verður haldinn í Norræna húsinu miðvikudaginn 21. mars. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, en dagskráin verður nánar auglýstsíðar. Á fundinum verður stjórn félagsins fyrir komandi starfsár kjörinn - og viljum við hvetja meðlimi í félaginu, nýja sem gamla, til að að bjóða sig fram í stjórn og ábyrgðarstörf fyrir félagið. Meira... |
Söfnunarfé afhent konum í Palestínu
09.01.2007 Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og formaður Félagsins Ísland-Palestína, dvaldi í Palestínu yfir hátíðirnar og var á aðfangadagskvöld í Bethlehem. Ferðina nýtti hann m.a. til að koma á framfæri hluta af þeirri neyðaraðstoð sem Félagið Ísland-Palestína hefur safnað á árinu til handa konum í Palestínu. Þann 2. janúar hitti Sveinn Amal Khrishe, forystukonu hjá Palestinian Working Women Society for Development (PWWSD) og afhenti samtökunum 4.000$. Meira... |
Góður árangur á Þorláksmessu
09.01.2007 Líkt og undanfarin tvö ár stóð Félagið Ísland-Palestína fyrir sölu á varningi til handa nauðstöddum í Palestínu á Þorláksmessu. Söluborði var komið fyrir á horni Bankastrætis og Skólavörðustíg þar sem sjálfboðaliðar seldu heitt kakó, nælur, boli og geisladiskinn Frjáls Palestína. Yfir 100.000 kr. söfnuðust að þessu sinni og rennur allur ágóði til kvennasamtaka í hertekinni Palestínu. Meira... |
Lokuð Bethlehem
25.12.2006 Á hátíð ljóss og friðar er rétt að minna á baráttu íbúa Landsins helga fyrir mannréttindum sínum og frelsi. Íbúar Bethlehem hafa sent heimsbyggðinni hjálparbeiðni með átakinu "Open Bethlehem" til að vekja athygli á innilokun borgarinnar af völdum hernámsins og byggingu Aðskilnarðarmúsins. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðunni; www.openbethlehem.org. Meira... |
Íslendingur handtekinn í Palestínu
13.12.2006 Egill Bjarnarson, 18 ára selfyssingur sem dvalið hefur í Palestínu frá því í september, var handtekinn við Huwwara vegatálman við Nablus í síðustu viku. Hann var færður til yfirherslu á landránsbyggð skammt frá og haldið í gæsluvarðhaldi í um fimm klukkustundir. "Það er kannski hálf sjálfhverft hjá mér að vera rekja raunir mínar yfir jafn ómerkilegri handtöku sem þessari á meðan Palestínumenn eru mun verr settir" segir Egill sem heldur úti efnismiklu bloggi frá ferð sinni um herteknu svæðin. Egill hefur m.a. tekið þátt í mótmælum heimamanna gegn hernáminu, starfað sem sjálfboðaliði í Hebron og aðstoðað bændur við ólívutínslu í grennd við Nablus. Meira... |
Sala til styrktar Palestínu á Þorláksmessu
12.12.2006 Síðustu tvö ár hefur Félagið Ísland-Palestína staðið fyrir sölu á varningi til styrktar Palestínu á Þorláksmessu. Engin breyting verður á því í ár og stefnt er því að hafa söluborðið á sama stað og í fyrra; á horni Bankastrætis og Skólavörðustígs. Þar verður í boði peysur, bolir, geisladiskar, nælur og að öllum líkindum kaffi og kakó. Allur ágóði af sölunni rennur til kvennasamtaka í hertekinni Palestínu. Meira... |
Húsfyllir á Hótel Borg - Vel heppnuð heimsókn Ziad Amro
12.12.2006 Ziad Amro, félagsráðgjafi og frumkvöðull í réttindabaráttu fatlaðra í Palestínu, kom í vel heppnaða heimsókn hingað til lands í lok nóvember í boði boði Félagsins Ísland-Palestína, Blindrafélagsins og Öryrkjabandlags Íslands. Hann var m.a. aðalræðumaður á opnum fundi sem FÍP stóð fyrir á alþjóðlegum samstöðudegi Sameinuðu þjóðanna með réttindum palestínsku þjóðarinnnar á Hótel Borg þann 29. nóvember þar sem hann fjallaði um áhrif hernámsins á líf palestínsku þjóðarinnar fyrir fullu húsi. Meira... |
Fjölmenni mótmælti við komu sendiherra Ísraels
08.12.2006 Rúmlega 100 manns mótmæltu árásum Ísraelshers á Gaza við komu sendiherra Ísraels í utanríkisráðuneytið að morgni 14. nóvember. Skilaboð mótmælana - að fjöldamorð Ísraelshers verði fordæmd, hernámi Palestínu linni og mannréttindi verði virt á herteknu svæðunum - komust vel til skila á mótmælunum sjálfum og í fréttum helstu fjölmiðla. Sendiherran fór út bakdyrameginn eftir fund sinn með utanríkisráðherra til að forðast mótmælendur. Meira... |
Opinn fundur á Hótel borg, 29. nóvember
24.11.2006 Félagið Ísland-Palestína stendur fyrir opnum fundi á alþjóðlegum samstöðudegi Sameinuðu þjóðanna með réttindarbaráttu palestínsku þjóðarinnar. Fundurinn fer fram á Hótel borg, miðvikudaginn 29. nóvember kl. 20:00. Aðalræðumaður er Ziad Amro, fyrrum framkvæmdastjóri og síðar formaður Öryrkjabandalags Palestínu.
Balzamersveitin Bardukha leikur nokkur lög af nýútkominni plötu. Meira... |
Mótmæli við komu sendiherra Ísraels, 14. nóv. kl. 10:45
13.11.2006 Félagið Ísland-Palestína fordæmir fjöldamorð Ísraelshers í Beit Hanoun og annars staðar á Gaza ströndinni og stendur fyrir mótmælum við komu sendiherra Ísraels í utanríkisráðuneytið við Rauðarárstíg þriðjudaginn 14. nóvember kl. 10:45. Hópmorð Ísraelshers í Beit Hanoun þann 8. nóvember s.l., þar sem 18 manns létu lífið, þar af flest konur og börn, er framhald á langvinnu ofbeldi og hernámi Ísraelsmanna í Palestínu. Meira... |
Gaza Strip sýnd í Alþjóðahúsinu, þriðjudaginn 14. nóv.
12.11.2006 Félagið Ísland-Palestína stendur fyrir sýningu á heimildarmyndinni Gaza Strip á Kaffi Kúltúra í Alþjóðahúsinu, Hvervisgötu 18, þriðjudaginn 14. nóvember. Hljómsveitin Retro Stefson mun leika nokkur lög áður en sýningin hefst og Sveinn Rúnar Hauksson læknir og formaður félagsins heldur stutta tölu um Aðskilnaðarmúrinn sem verið er að reisa í Palestínu og ástandið á Gaza. Dagskráin er hluti af alþjóðaviku gegn Aðskilnaðarmúrnum og er einnig skipulögð til að sýna samstöðu með íbúum Gaza sem þurft hafa þola linnulausar árásir og fjöldamorð undanfarna daga. Meira... |
Mótmælastaða við bandaríska sendiráðið á föstudaginn
27.07.2006 Um heim hefur fólk mótmælt árásum Ísraela á Líbanon. Samtök herstöðvarandstæðinga munu standa fyrir mótmælastöðu hér á landi fyrir framan bandaríska sendiráðið núna á föstudaginn (28/7) kl. 17:30. Í ályktun frá samtökunum segir; "Samtök herstöðvaandstæðinga skora á ríkisstjórn Íslands að fordæma mannréttindabrot Ísraels í Líbanon og beita sér fyrir því að þau verði stöðvuð tafarlaust." Meira... |
Peningasending til öryrkja í Palestínu stöðvuð
27.07.2006 Félagið Ísland-Palestína vill vekja athygli á því að peningasending sem ætluð var Öryrkjabandalagi Palestínu (General Union of Disabled Palestinians) hefur verið stöðvuð í banka í New York. Um er að ræða um 4.500$ (rúmlega 330.000 kr) sem safnast hefur í gegnum neyðarsöfnun félagsins m.a. með styrktartónleikum og framlögum einstaklinga. Svo virðist sem stöðvun sendingarinnar sé liður í stefnu ísraelskra stjórnvalda að svelta íbúa herteknu svæðana til hlýðni og undirgefni. Meira... |
Fjölmenni á mótmælafundi á Austurvelli
15.07.2006 Mótmælafundur sem Félagið Ísland-Palestína stóð fyrir á Austurvelli fimmtudaginn 13. júlí voru vel sótt. Mótmælin sjálf og kröfur þeirra - að stríðsglæpunum á Gaza yrðu stöðvaðir og Ísraelsher fari burt úr Palestínu - fengu góða athygli í fjölmiðlum og um 115.000 krónur söfnuðust í neyðarsöfnun til handa konum í hertekinni Palestínu. Sjáið myndir frá mótmælafundinum með því að smella á 'meira'. Meira... |
Utanríkisráðuneytið styrkir hjálparstarf í Palestínu
15.07.2006 Utanríkisráðherra hefur ákveðið að veita 6,2 milljónum króna til stuðnings við hjálparstarf Rauða hálfmánans á herteknu svæðunum í Palestínu. Hjálparstarf Matvælaáætlunar Sameinuðu þjuóðanna (World Food Programme) í Austur-Tímor verður einnig styrkt um 7,5 milljónir. Félagið Ísland-Palestína fagnar þessu framlagi og hefur sent utanríkisráðherra þakkir fyir þennan mikilvæga stuðning við íbúa herteknu svæðanna. Meira... |
Stöðvið stríðgslæpina á Gaza!
-Mótmælafundur fimmtudaginn 13. júlí á Austurvelli
12.07.2006 Félagið Ísland-Palestína boðar til mótmælafundar á Austurvelli, fimmtudaginn 13. júlí, til að mótmæla stríðsglæpum Ísraelshers á Gaza. Ávörp flytja Guðrún Ögmundsdóttir alþingismaður og Sveinn Rúnar Hauksson læknir og formaður Félagsins Ísland-Palestína. Fundarstjóri verður Þorbjörn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samiðnar. Tónlist flytja hljómsveitin Llama og KK, en tónlistaratriðin hefjast hálftíma á undan mótmælafundinum eða kl. 17:00. Meira... |
Stríðsglæpum Ísraela á Gaza mótmælt
-Verið að skipuleggja mótmælafund á Austurvelli
10.07.2006 Verið er að skipuleggja mótmæli vegna stríðsglæpa Ísraela á Gaza undanfarið, árásum og handtökum á kjörnum fulltrúum Palestínumanna og aðförum Vesturlanda að lýðræðislega kjörinni stjórn í Palestínu. Stefnt er á að halda mótmælin fimmtudaginn 13. júlí á Austurvelli. Fréttir af dagskrá og staðfest tímasettning verður birt hér á vefnum. Meira... |
Roger Waters vill ekki verða steinn í veggnum
21.06.2006 Fyrrverandi Pink Floyd meðlimurinn Roger Waters, sem mánudaginn 12. júní spilaði fyrir um 15.000 Íslendinga í Egilshöll, hefur aflýst fyrirhugðum tónleikum sínum í Tel Aviv í Ísrael og fært þá í friðarþorpið Neve Shalom/Wahat al-Salam sem byggt er bæði byggt Palestínumönnum og Ísraelum. Roger Waters hefur um nokkurt skeið verið yfirlýstur andstæðingur byggingu Aðskilnaðarmúrsins og hernámsstefnu Ísraela í Palestínu. Meira... |
Vel heppnaðir tónleikar fyrir konur í Palestínu!
05.06.2006 Fimmtudaginn 25. maí hélt Félagið Ísland-Palestína í samvinnu við UNIFEM á Íslandi vel heppnaða styrktar- og stuðningstónleika fyrir konur í hertekinni Palestínu á Grand rokk . Á tónleikunum komu fram Reykjavík!, Mr. Silla, Wulfgang, Seabear og Shadow Parade. Myndir frá Hugleiki Dagssyni voru boðnar upp og varningur, m.a. sérhannaðir bolir Nakta apans og Dead, til sölu. Sjáið myndir frá tónleikunum hér. Meira... |
Jimmy Carter gagnrýnir landránsstefnu Ísraelsmanna
05.06.2006 Jimmy Carter fyrrum Bandaríkjaforseti tekur skýra afstöðu gegn aðgerðum Bandaríkjastjórnar, Evrópusambandsins og annarra gegn íbúum palestínsku herteknu svæðanna fyrir að kjósa frambjóðendur Hamas-samtakanna í grein sem hann skrifar í International Herald Tribune. Í annari nýlegri grein - 'Israel's new plan: A land grab' (Hin nýja áætlun Ísraels - landrán) - sem birtist fyrir skömmu USA Today gagnýnir Carter harðlega landránsstefnu Ísraelsmanna í Palestínu. Meira... |
Friður getur aðeins verið ávöxtur réttlætis
-Iamail Haniyeh útskýrir afstöðu nýju heimastjórnarinnar
01.06.2006 Hér er stutt grein eftir hinn nýja forsætisráðherra Palestininan Authority (“heimastjórnarinnar” á herteknu svæðunum), Ismail Haniyeh, sem hefur ekki ferðafrelsi til að komast frá Gaza á ríkisstjórnar- eða þingfundi í Ramallah. Greinin birtist í egypska vikublaðinu Al-Ahram, sem kemur út á ensku og er jafnframt aðgengilegt á netinu. Grein Haniyeh skýrir í stuttu máli grundvallarafstöðu hans til Ísraels og hernámsins og er afar áhugaverð. Meira... |
Skilyrði Hamas fyrir viðurkenningu á Ísraelsríki
01.06.2006 Skilyrði Hamas fyrir viðurkenningu á Ísrael
Hamas-samtökin halda sér við það skilyrði fyrir friði og viðurkenningu á Ísraelsríki sé að hernámi þeirra á palestínsku herteknu svæðunum, að meðtalinni Austur-Jerúsalem, linni. Þessi skilyrði og önnur sem Khaled Meshaal, leiðtogi Hamas- samtakanna hefur áréttað eru í raun í samræmi við alþjóðalög og samþykktir Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. þess má geta að Ísrael viðurkennir ekki sjálfstæði Palestínu eða rétt Palestínumanna til að stofna sjálfstætt ríki. Meira... |
Stofnun Ísraels - hörmungarnar miklu fyrir Palestínumenn
30.05.2006 Þann 15. maí er þess minnst að 58 ár eru liðin frá stofnun Ísraelsríkis og um leið er minnst Hörmunganna miklu – Nakba, þegar hundruðir þúsunda Palestínumanna voru hraktir af landi sínu og til varð mesta flóttamannavandamál sögunnar. Enn búa milljónir Palestínumanna við hernám auk þeirra milljóna sem eru landflótta. Hér fyrir neðan er grein úr Guardian frá því á föstudaginn 12. maí eftir Karma Nablusi, háskólakennara í stjórnmálafræðum við Oxford háskólann, áður fulltrúa Frelsisamtaka Palestínu (PLO). Meira... |
Samstöðu- og styrktartónleikar fyrir konur í Palestínu
- Fimmtudaginn 25. maí á Grand rokk
20.05.2006 Félagið Ísland-Palestína og UNIFEM á Íslandi standa fyrir samstöðu- og styrktartónleikum fyrir konur í Palestínu fimmtudaginn 25. maí á Grand rokk. Þar koma fram hljómsveitirnar Reykjavík!, Seabear, Wulfgang, Future Future og Mr. Silla. Bolir, peysur og annar varningur til sölu. Allur ágóði rennur til palestínskra kvennasamtaka sem starfa á sviði mannúðar- og mannréttindarmála í hertekinni Palestínu. Meira... |
Góður árangur af söfnun 1. maí - 175.000 kr safnast
06.05.2006 Félagið Ísland-Palestína vakti athygli á málefnum Palestínu við 1. maí hátíðarhöld í Reykjavík. Palestínskir fánar voru áberandi í göngunni og við ræðuhöld á Ingólfstorgi - sem og borðar og spjöld með áletrunum "Stöðvum stríðsglæpina" og "Styðjum konur í Palestínu". Félagsmenn söfnuðu 175.707 krónum, sem renna óskiptir í nýtt söfnunarátak félagsins og UNIFEM á Íslandi til handa konum í Palestínu. Sjáið myndir frá deginum hér. Meira... |
Söfnunarátak fyrir konur í Palestínu 1. maí
29.04.2006 Félagið Ísland-Palestína og UNIFEM á Íslandi hafa ákveðið að taka höndum saman til að vekja athygli á stöðu kvenna í hertekinni Palestínu og sína stuðning við þær í verki með því að ýta úr vör fjársöfnunarátaki. Átakið hefst formlega þann 25. maí með tónleikum á Grand rokk - en líkt og undanfarin ár mun Félagið Ísland-Palestína vera með neyðarsöfnun fyrir Palestínu við 1. maí hátíðarhöld í Reykjavík og rennur féð sem þar safnast að þessu sinni óskert í umrædda söfnun fyrir konur í Palestínu. Meira... |
Uri Avnery skrifar um kosningarnar í Ísrael
15.04.2006 Ísraelski friðarsinninn Uri Avnery skrifar athyglisverða grein um kosningaúrslitin í Ísrael. Eins og kunnugt er beið Likud-bandalagið afhroð í kosningunum og fór úr 1. sæti í 5. sæti yfir atkvæðamestu flokkana á Knesset, ísraelska þinginu. Hægri flokkar og trúarflokkar fengu samtals 51 af 120 þingsætum. Á hinn bóginn má líta á Kadima (flokk Sharons og Olmerts) sem andlitslyftingu á Likud sem Sharon stofnaði jú líka fyrir 32 árum. Meira... |
Kosningaúrslit í Ísrael eru stuðningur við Apartheid
11.04.2006 Úrslit kosninganna í Israel þann 28. mars s.l. eru ótvíræður stuðningur við þá Apartheid-stefnu sem ríkjandi er í Ísrael í dag . 'Spinnið' í fjölmiðlum í Ísrael og um heim allan, þar sem stóru alþjóðlegu fréttaveiturnar eru alls ráðandi, gengur út á að nú eigi að yfirgefa herteknu svæðin í Palestínu; Vesturbakkann eins og Gaza, og ákveða landamæri tveggja sjálfstæðra ríkja. En veruleikinn er annar. Meira... |
Félagið Ísland-Palestína á MySpace
11.04.2006 Nýjasta nýtt í netheimum er MySpace veröldin þar sem eintaklingar, hljómsveitir, félög og fyrirtæki búa til eigin MySpace síður og tenglanet. Félagið Ísland-Palestína lætur sig ekki vanta og er að sjálfsögðu á MySpace. Ef þú ert þar líka "add-aðu" okkur endilega á vinalistann. Vefslóð félagsins á MySpace er; www.myspace.com/palestina Meira... |
Vel heppnaður aðalfundur í Norræna húsinu
23.03.2006 Rúmlega 30 manns voru viðstaddir aðalfund Félagsins Ísland-Palestína sem fram fór 22. mars í Norræna húsinu. Auk hefðbundina aðalfundarstarfa flutti Jónas Þórir Þórisson framkvæmdarstjóri Hjálparsarfs kirkjunnar fróðlegt ávarp um starfsemi samtaka sinna í Palestínu og Anna Tómasdóttir háskólanemi var með áhrifaríka frásögn um ferð sína til Vesturbakkans í sumar. Meira... |
Aðalfundur FÍP í Norræna húsinu, miðvikudaginn 22. mars
19.03.2006 Aðalfundur Félagsins Ísland-Palestína verður haldinn í Norræna húsinu miðvikudagskvöldið 22. mars klukkan 20.00. Jónas Þórir Þórisson, framkvæmdarstjóri Hjálparsarfs kirkjunnar mun flytja ávarp og Anna Tómasdóttir háskólanemi segir frá ferð sinni til Palestínu í máli og myndum. Auk þess verða venjuleg aðalfundarstörf. Skorað er á félaga að fjölmenna á fundinn. Meira... |
Hjálparbeiðni vegna Augusta Victoria Hospital
- Félagið Ísland-Palestína sendir 2.000 $
16.03.2006 Félaginu Ísland-Palestína hefur borist hjálparbeiðni frá Lúterska heimssambandinu í Jerúsalem vegna neyðarsöfnunar sem efnt er til fyrir sjúkrahúsrekstur þess, en hann er nú í uppnámi. Óvissa er um áframhald á þjónustu sem engir aðrir veita, meðal annars er þetta eina sjúkrahúsið á Vesturbakkanum, sem hefur gervinýru fyrir börn. Meira... |
Nýtt tölublað Frjálsrar Palestína komið út
14.03.2006 Nýtt tölublað af málgagni Félagsins Ísland-Palestína er komið út. Meðal efnis eru greinar um nýlegan kosningasigur Hamas samtakanna, grein ísraelska friðarsinnans Uri Avnery um brotthvarf ísraelshers frá Gaza, myndir frá tónleikum til styrktar Öryrkjum í Palestínu og grein um söfnunina, myndir frá kveðjuheimsókn Ómar Sabri Kitmitto sendiherra Palestínu og PLO og margt fleira. Blaðið er alls 16 síður í lit og er hægt að nálgast á PDF formi hér. Meira... |
Stétta- og starfsmannafélög styrkja krabbameinssjúk börn í Palestínu
10.03.2006 Í janúar afhenti Svala Norðdahl, varaformaður SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu, Amneh Agaha, stofnanda Maher Center, styrk að upphæð 700.000 kr fyrir krabbameinssjúk börn í Palestínu. Svala ferðaðist til Palestínu um páskana og heimsótti meðal annars Hal Hussein spítalann í Bethlehem sem sinnir krabbameinssjúkum börnum, en Maher Center er nýstofnuð miðtöð í tengslum við spítalann. Meira... |
Nýr Palestina.is í loftið
29.01.2006 Félagið Ísland-Palestína hefur opnað nýja útgáfu af vefnum Palestina.is. Útlit og uppbygging vefjarins hefur verið nær óbreytt frá því hann honum var komið á laggirnar fyrir um 6 árum og því komin tími til að breyta. Mikið af nýju efni birtist nú í fyrsta sinn á nýja vefnum og má þar nefna myndasöfn, upplýsingar um félagið og ýmis málefni er varða Palestínu. Hlekkjasafnið hefur verið tekið í gegn og samanstendur nú af vísunum í yfir 300 vefsíður. Meira... |
Kosningar í Palestínu: Sigur Hamas
27.01.2006 Miðvikudaginn 25. janúar gátu íbúar á herteknu svæðunum í Palestínu, Vesturbakkanum og Gaza, kosið til löggjafaþings palestínsku heimastjórnarinnar. Kjörsókn var mjög góð, en um 75% þeirra 1.332.396 manna sem voru á kjörskrá nýttu atkvæðisrétt sinn. Í síðustu þingkosningum var það Fatah hreyfingin sem vann yfirburðarsigur, en nú tíu árum síðar, nær Hamas hreinum þingmeirihluta með því að fá 43% atkvæðana (á móti 40% fylgi Fatah). Meira... |
Yfir hálf milljón hefur safnast fyrir öryrkja í Palestínu
25.01.2006 Félagið Ísland-Palestína hóf söfnunarátak til handa öryrkjum í Palestínu með tónleikum á Grand rokk þann 29. nóvember - á alþjóðlegum samstöðudegi Sameinuðu þjóðanna með réttindum palestínsku þjóðarinnar. Með tónleikunum, sölu á bolum og peysum hönnuðum og framleiddum af Nakta apanum og Dead og frjálsum framlögum hefur nú safnast meira en hálf milljón fyrir öryrkja í Palestínu. Meira... |
Sala til styrktar Palestínu á Þorláksmessu
22.12.2005 Frábær árangur hefur náðst í söfnun fyrir Öryrkja í Palestínu sem hófst þriðjudaginn 29. nóvember - á alþjóðlegum samtöðudegi Sameinuðu þjóðanna til stuðnings réttinum palestínsku þjóðarinnar með tónleikum á Grand rokk. Alls hafa safnast 306.129 krónur. Varaformaður Félagsins Ísland-Palestína (FÍP) Borgþór S. Kjærnested er á leið til Palestínu og mun afhenda Ziad Amro, formanni Öryrkjabandalags Palestínu (General Union of Disabled Palestinians) í Ramallah á jóladag. Meira... |
Söfnunarfé til handa öryrkjum afhent á Jóladag
22.12.2005 Frábær árangur hefur náðst í söfnun fyrir Öryrkja í Palestínu sem hófst þriðjudaginn 29. nóvember - á alþjóðlegum samtöðudegi Sameinuðu þjóðanna til stuðnings réttinum palestínsku þjóðarinnar með tónleikum á Grand rokk. Alls hafa safnast 306.129 krónur. Varaformaður Félagsins Ísland-Palestína (FÍP) Borgþór S. Kjærnested er á leið til Palestínu og mun afhenda Ziad Amro, formanni Öryrkjabandalags Palestínu (General Union of Disabled Palestinians) í Ramallah á jóladag. Meira... |
Sveinn Rúnar kominn heim eftir 3 vikna Palestínuferð
30.11.2005 Formaður félagsins, Sveinn Rúnar Hauksson læknir, er kominn heim eftir 3 vikna ferð um hertekna Palestínu, Vesturbakkann og Gaza. Hann náði þessu sinni að heimsækja einnig palestínskar byggðir í Ísrael, það er þann hluta Palestínu sem hernuminn var 1948, þar á meðal bæina Saknin og Nazaret. Þá lá leiðin einnig um byggðir Sýrlendinga á Gólanhæðum sem herteknar voru 1967 og Ísraelar hafa enn ekki skilað. Þar voru nærri 150 þorp lögð í eyði og aðeins 5 þorp eftir. Í stað blómlegra byggða drúsa eru ísraelskar herstöðvar og landtökubyggðir. Meira... |
|