Safnplatan Frjáls Palestína
-Til stuðnings barnastarfi í flóttamannabúðunum Balata
Margir fremstu tónlistarmenn og hljómsveitir landsins koma fram á safndisknum Frjáls Palestína - sem gefinn er út til að sýna samstöðu með stríðshrjáðum í Palestínu og safna fé fyrir æskulýðsstarf í flóttamannabúðunum Balata, þeim fjölmennustu á Vesturbakka hertekinnar Palestínu. Verkefnið sem styrkt er kallast Project Hope. Diskurinn er gefin út af Félaginu Ísland-Palestína og dreift af 12 tónum.
Frjáls Palestína inniheldur 18 lög með flytjendum á borð við KK, Vinyl, Ske, Quarashi, Ensími, Ghostigital, múm, Leaves, 200.000 naglbítum, Worm is Green, Gus Gus, Mugison og Ragnari úr Trabant. Helmingur laganna er aðeins fáanlegur á disknum á meðan hinn helmingurinn er eldra efna valið af listamönnunum sjálfum. Allir listamennirnir gefa vinnu sína - líkt og Eva Einarsdóttir sem sá um útgáfuna og hönnuðurinn Ragnar Freyr Pálsson (Onrushdesign/Front) sem hannaði glæsilegt umslag plötunnar.
Diskurinn er fáanlegur á sölustöðum tónlistar víða um land m.a. Skífunni (Laugavegi 26, Kringlunni og Smáralind) og 12 tónum (Skólavörðustíg 15). Leiðbeinandi útsöluverð er 2.000 krónur. Hann er einnig seldur á viðburðum á vegum FÍP og þá oft á betra verði.
Smellið hér til að heimsækja heimasíðu Frjáls Palestína CD.
Smellið hér til að sjá myndir frá útgáfutónleikum disksins.
|