Hverfandi Palestína. Allt frá því Sameinuðu þjóðirnar ákváðu að skipta Palestínu í ríki Palestínumanna og gyðinga hefur Ísraelsríki sölsað undir sig meira land á meðan Palestínumenn hafa misst heimaland sitt og verið hraktir í útlegð, þvert á alþjóðalög og samþykktir S.þ. Í dag búa milljónir Palestínumanna sem flóttamenn og öll Palestína hefur verið innlimuð, hernumin eða er undir umsátri hernámsliðs (t.a.m. Gaza og þéttbýliskjarnar hins hernumda Vesturbakka, svæði sem teljast hernumin samkvæmt skilgreiningu S.þ.).

* Lög og markmið Félagsins Ísland-Palestína
* Skráðu þig í Félagið Ísland-Palestína hér
* Félagið á Facebook / Skráðu þig á póstlistann með línu á palestina@palestina.is

fréttir

Íslandi yrði ekki refsað fyrir að slíta stjórnmálasambandi
01.06.2010 Stjórnmálafræðurinn Silja Bára Ómarsdóttir telur að Ísland geti sýnt fordæmi með því að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael án þess að bera mikinn skaða af. Þetta kemur fram í grein DV. Hér er einnig vísað í yfirlýsingar frá palestínsku mannréttindarsamtökunum MIFTAH og ísraelska friðarsinnans Uri Avnery og Gush Shalom. Meira...

Ályktun frá Félaginu Ísland-Palestína og mótmælastaða
01.06.2010 Félagið Ísland-Palestína hefur sent frá sér ályktun (dagsett 31. maí 2010) þar sem skorað er á íslensk stjórnvöld að slíta þegar í stað stjórnmálasambandi við ísraelsk stjórnvöld og beita sér fyrir því að Ísrael fari að samþykktum Sameinuðu þjóðanna og hætti ólögmætu umsátri og hernámi sínu á palestínsku herteknu svæðunum. Meira...

Ný heimasíða væntanleg - LÍTIÐ UM UPPFÆRSLUR
01.06.2010 Ný heimasíða Félagsins Ísland-Palestína er í vinnslu og mun opna innan skamms. Því miður hefur vinnsla við síðuna tafist - og því verið lítið um uppfærslur á Palestina.is undanfarið. Við bendum fólki á póstlista og Facebook hóp félagsins til að fá upplýsingar um starfsemi félagsins (fundi, tónleika, mótmæli o.s.frv.) þar til ný síða fer í loftið. Meira...

Hverfandi Palestína (kort) / Hamas + Gaza (upplýsingar)
24.05.2009 Upplýsingatexti og kort sem var á forsíðu Palestina.is frá áramótum 2008/09. Kortið sýnir hvernig land Palestínumanna hefur síðustu áratugi verið tekið af þeim. Stuttir upplýsingatextar um hverfandi Palestínu, Gaza svæðið og og Hamas samtökin. Meira...

Vilt þú gerast félagsmaður í Félaginu Ísland-Palestína?
17.01.2009 Félagið Ísland-Palestína hvetur þá sem vilja sýna íbúum hertekinnar Palestínu stuðning í verki, og eru sammála lögum og markmiðum félagsins, til að ganga til liðs við félagið. Með því að ganga í Félagið Ísland-Palestína ertu styðja við mannréttindarbaráttu palestínsku þjóðarinnar, kröfuna um að hernámi Palestínu linni í samræmi við ályktanir Sameinuðu þjóðanna og Palestínumenn fái lífvænlegt, sjálfstætt og fullvalda ríki. Meira...

greinar
29. nóvember – Samstaða með Palestínu
29.11.2009 | Sveinn Rúnar Hauksson Yfirlýsing Abbas forseta Palestínu um að gefa ekki kost á sér til endurkjörs lætur ekki mikið yfir sér, en hún markar tímamót og uppgjör. Uppgjörið felur í sér að forysta PLO hefur gefist upp á biðinni eftir því að Bandaríkjastjórn rækji hlutverk sitt sem málamiðlari í deilu Ísraels og Palestínu. Þar er um mjög ójafnan leik að ræða þar sem annars vegar er vopnlaus þjóð sem búið hefur við hernám í 42 ár og raunar allt frá árinu 1948. Meira...
málefni og upplýsingar


Saga Palestínu og Ísraels


Aðskilnaðarmúrinn


Alþjóðalög og
samþykktir S.þ.


Flóttamenn

electronic intifada

This webpage uses Javascript to display some content.

Please enable Javascript in your browser and reload this page.

póstlisti

Skráðu þig á póstlista Félagsins Ísland-Palestína og fáðu fréttir af starfsemi félagsins. Póstlistanum er haldið úti með hjálp póstkerfi Yahoo. ATH! Þ ú færð sendan staðfestingarpóst um hæl, einfaldast er að svara honum ('reply' og 'send') í stað þess að velja "join group" sem kallar á flóknara umsóknarferli. Þú getur hvenær sem er skráð þig af póstlistanum.


 

auglýsing



WWW Palestina.is

Google

© Félagið Ísland-Palestína 2007 - palestina@palestina.is