FORSÍÐA

Safndiskurinn Frjáls Palestína
Flytjendur: 18 íslenskir tónlistarmenn og hljómsveitir
Útgefandi: Félagið Ísland-Palestína
Dreifing: 12 tónar, S: 511 5656
Verð: 2.000 krónur

FRJÁLS PALESTÍNA
LAGALISTI
UMFJALLANIR
KAUPA EINTAK

Project Hope

Markmið Project Hope er að veita æsku Palestínu stuðning og von um betri framtíð. Áhersla er lögð á menntun, en jafnframt á ýmiss konar afþreyingu og listsköpun. Á vegum þess eru haldin námskeið á ýmsum sviðum – t.a.m. í leiklist, myndlist, skyndihjálp, ensku og öðrum tungumálum. Reynt er að hjálpa börnum og ungu fólki að vinna úr erfiðri lífsreynslu sinni, örvæntingu og vonleysi og jafnframt hvetja þau til að nýta jákvæða hæfileika sína.

Verkefnið er skipulagt og unnið af Palestínumönnum og rekið með aðstoð alþjóðlegra sjálfboðaliða. Helstu starfsvæði Project Hope í Palestínu eru í flóttamannabúðunum Balata og Askar, borginni Nablus og þorpinu Jayyous.

Frekari upplýsingar um starfsemi Project Hope má nálgast á heimasíðu verkefnisins; www.projecthope.ps.

PROJECT HOPE
BALATA CAMP
HÖNNUN
MYNDVERK F/FJÖLMIÐLA
VEFBORÐAR
UPPLÝSINGAR
ENGLISH