FORSÍÐA

Safndiskurinn Frjáls Palestína
Flytjendur: 18 íslenskir tónlistarmenn og hljómsveitir
Útgefandi: Félagið Ísland-Palestína
Dreifing: 12 tónar, S: 511 5656
Verð: 2.000 krónur

FRJÁLS PALESTÍNA
LAGALISTI
UMFJALLANIR
KAUPA EINTAK

Frjáls Palestína

Hin herteknu svæði Palestínu, Vesturbakkinn og Gaza-svæðið, hafa þegar þessi safndiskur kemur út verið undir ísraelsku hernámi í yfir 37 í trássi við samþykktir Sameinuðu þjóðanna nr. 242 og 338. Palestínskir íbúar herteknu svæðanna búa réttlausir í eigin heimalandi. Grundvallarmannréttindi þeirra eru fótum troðin, landi þeirra rænt og þeir beittir hóprefsingum á borð við innilokunum heilu byggðarlagana og húseyðileggingum.

Landrán á landi Palestínumanna nær nú nýju hámarki með byggingu Aðskilnaðarmúrsins. Múrinn, sem verið er að reisa á herteknu landi Vesturbakkans en ekki landamærunum að Ísrael eins og sumir halda, býr ekki aðeins til einangruð gettó úr byggðum Palestínumanna heldur kemur í veg fyrir eina vænlegustu lausnina til friðar á svæðinu; að Palestínumenn fái að stofna eigið fullvalda ríki við hlið Ísraels. Samkvæmt úrskurði Alþjóðadómstólsins í Haag er bygging múrsins stríðsglæpur, hann ber að rífa þegar í stað og fórnarlömbum þess greiddar bætur.

Ég hef sjálf starfað sem sjálfboðaliði í Palestínu og upplifað það hörmulega ástand og óréttlæti sem íbúar herteknu svæðanna búa við. Eftir að ég kom heim vildi ég gera meira til að aðstoða íbúa Palestínu, þá sérstaklega æsku landsins. Hugmyndin að safndisknum Frjálsri Palestínu kviknaði í upphafi árs 2004 og var stefnan tekin á að safna fé fyrir verkefnið Von, Project Hope, í flóttamannabúðunum Balata. Titillinn Frjáls Palestína ber í brjósti þá von að hernáminu í Palestínu, og þeim hörmungum sem því fylgir, ljúki sem fyrst.

Þessi safndiskur hefði aldrei orðið veruleika ef ekki væri fyrir góðvild og jákvæðni þeirra frábæru listamanna sem hér koma fram. Ég vil þakka þeim, og öllum öðrum sem að plötunni koma, hjartanlega fyrir alla sína vinnu og aðstoð. Frjáls Palestína er okkar framlag til að veita æskulýð í Balata-flóttamannabúðunum von um betri framtíð!

-Eva Einarsdóttir, verkefnisstjóri Frjálsrar Palestínu

 

PROJECT HOPE
BALATA CAMP
HÖNNUN
MYNDVERK F/FJÖLMIÐLA
VEFBORÐAR
UPPLÝSINGAR
ENGLISH