![]() |
![]() |
![]() |
|---|---|---|
| FORSÍÐA | Safndiskurinn Frjáls Palestína |
|
| FRJÁLS PALESTÍNA | ||
| LAGALISTI | ||
| UMFJALLANIR | ||
| KAUPA EINTAK | Flóttamannabúðirnar Balata Flóttamannabúðirnar, sem eru staðsettar nærri borginni Nablus á norðurhluta Vesturbakkans, voru fyrst um sinn aðeins stór tjaldborg. Þegar í ljós kom að bið yrði á að flóttamennirnir fengju að snúa aftur var steyptum bráðabirgðar-húsum og skýlum komið upp. Í dag sér Palestínuflóttamannahjálp S.Þ. (UNRWA) íbúum Balata fyrir heilsugæslu og menntun - en engu að síður er mikill skortur á slíkri þjónustu. Flestir íbúana lifa undir fátæktarmörkum og síðan síðari Intifada uppreisn Palestínumanna hófst hafa þeir þurft að þola gífurlegt atvinnuleysi. Íbúar Balata hafa tekið virkan þátt í báðum Intifada uppreisnum Palestínumanna (1987-93 og 2000-?) fyrir mannréttindum sínum og gegn hernámi Ísraela í Palestínu. Hverfisnefndir búðanna eru öflugar að skipuleggja mótmæli, verkföll, sniðgöngu á tilskipunum hersins og útigangsbönnum og aðra friðsamlega andspyrnu. Tilgangur þeirra er að taka völdin úr höndum hernámsliðsins á sem flestum sviðum samfélagsins svo íbúarnir geti sjálfir stjórnað sínu daglega lífi. Íbúar Balata hafa orðið illa úti í stanslausum innrásum og umsátrum hernámsliðins síðustu ár með tilheyrandi drápum, limlestingum, hópfangelsunum og eyðileggingum heimila fólks. |
![]() |
| PROJECT HOPE | ||
| BALATA CAMP | ||
| HÖNNUN | ||
| MYNDVERK F/FJÖLMIÐLA |
||
| VEFBORÐAR | ||
| UPPLÝSINGAR | ||
| ENGLISH | ||
![]() |
||
![]() |
![]() |