
Fyrir Gaza er safnplata gefin út fyrir íbúa Gaza þar sem 19 listamenn og hljómsveitir koma saman í nafni mannréttinda og mannúðar. Má þar nefna GusGus, FM Belfast, Sóley, Mammút, Cell 7, Hjaltalín, Prins Póló og Mugison.
Allur ágóði af sölu plötunnar rennur AISHA – Associal for Women and Child Protection sem sinnir neyðarhjálp fyrir konur og barnafjölskyldur á Gaza svæðinu. Samtökin standa einnig fyrir námsmkeiðum og fræðslustarfi til að fyrirbygja heimilisofbeldi, stuðla að jafnrétti og styrkja stöðu kvenna á Gaza og annarstaðar í hertekinni Palestínu.
Á plötunni er að finna lög með mörgum vinsælustu hljómsveitum og tónlistarmönnum landsins. Lög á plötunni eiga; GusGus, FM Belfast, Sóley, Cell 7, Mammút, Mugison, múm, Ojba rasta, Ólafur Arnalds, Prins Póló, Sin Fang, Snorri Helgason, Uni Stefson, Ghostigital, Borkó, For a Minor Reflection, Moses Hightower, Hjaltalín og Samaris.
Hönnun umslags plötunnar og allt myndverk hennar er eftir Ingibjörgu og Lilju Birgisdætur.
Eva Einarsdóttir er upphafsmaður og umsjónarmaður útgáfunnar. Hún ferðaðist til Palestínu árið 2003 og starfaði sem sjálfboðaliði að æskulýðsstarfi hjá PMRS, Palestínsku læknarhjálparnefndunum og Project Hope í Balata flóttamannbúðunum við Nablus. Árið 2004 átti hún frumkvæði að útgáfu safnplötunnar Frjáls Palestína sem gefin var út til styrktar æskulýðsstarfi Project Hope og innihélt lög með listamönnum á borð við Quarashi, KK, XXX Rottweiler, Mugison, Leaves og Ensími. Nú tíu árum síðar, í kjölfar árásana á Gaza í sumar og hrikalegs eftirleiks þeirra, setur hún saman safnplötu fyrir íbúa svæðisins í samvinnu við íslenska listamenn og annað hæfileikafólk sem lagt hefur verkefninu lið.
Útgáfuhóf fyrir plötuna verður haldið á KEX Hostel, Skúlagötu 28, laugardaginn 29. Nóvember klukkan 16:00-18:00. Þar munu koma fram; Sóley, Cell 7 og Uni Stefson. Prentverk tengd plötunni eftir Ingibjörgu og Lilju Birgisdætur verða til sölu. Platan að sjálfsögðu til sölu.. Engin aðgangseyrir. Allir velkomnir!
Sjá meira hér: https://www.facebook.com/events/836897656361680/
Lagalisti plötunnar er:
1. Prins Póló – Hamstra sjarma
2. Borkó – Born To Be Free
3. Ólafur Arnalds – Near Light
4. Mugison – Ljósvaki
5. Mammút – Ró
6. Snorri Helgason – Ólán
7. Ojba Rasta – Draumadós 490
8. Cell7 – Gal Pon Di Scene
9. FM Belfast – Gold
10. GusGus – Sustain
11. Uni Stefson – Enginn grætur
12. Sin Fang – Sun Beam
13. Hjaltalín – Across The Ocean
14. Sóley – Don’t Ever Listen
15. Moses Hightower – Háa c
16. For a Minor Reflection – Impulse
17. Samaris – Stofnar falla
18. Ghostigital – Elastic Tounge
19. múm – Saddle Up
Fyrir Gaza fæst í verslunum Eymundsson, Hagkaups og öllum helstu plötuverslunum.
Verð á flestum sölustöðum er 2.699 krónur.