Inga Sveinsdóttir og Guðfinnur Sveinsson segja frá ferð sinni til Palestínu í máli og myndum á opnum fundi á vegum FÍP í Norræna húsinu.
(Ljósmynd: Óskar Hallgrímsson)
félagið ísland-palestína | lög & markmið | stjórn | skráning í félagið
starfsemi | e-mail póstlisti | fyrir fjölmiðla | hafðu samband

Lög og markmið Félagsins Ísland-Palestína


1. gr. Nafn félagsins er Félagið Ísland-Palestína.
Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.


2. gr. Markmið félagsins eru:

  • Að stuðla að jákvæðum viðhorfum meðal Íslendinga til ísraelsku og palestínsku þjóðanna og vinna gegn aðskilnaðarstefnu og hver kyns mismunun á grundvelli uppruna, ætternis eða trúarbragða.
  • Að kynna baráttu Palestínumanna gegn hernámi og fyrir sjálfsákvörðunarrétti og rétti palestínskra flóttamanna til að hverfa aftur til síns heimalands.
  • Að beita sér fyrir því, að Íslendingar leggi sitt af mörkum til þess að réttlát og friðsamleg lausn finnist á deilu Ísraela og Palestínumanna á grundvelli alþjóðaréttar og mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna og með tilliti til allra samþykkta Sameinuðu þjóðanna sem varða deiluna.
  • Að vinna að því að ríkisstjórn Íslands veiti PLO, Frelsissamtökum Palestínumanna, fulla stjórnmálalega viðurkenningu sem réttmætum fulltrúa palestínsku þjóðarinnar og styðji í verki rétt Palestínumanna til að stofna lífvænlegt, sjálfstætt og fullvalda ríki.


3. gr. Markmiðum sínum hyggst félagið ná með kynningar- og útgáfustarfsemi, menningarstarfsemi, með heimsóknum, neyðaraðstoð og öðrum samskiptum.


4. gr. Hver sá sem er sammála markmiðum félagsins og greiðir félagsgjöld getur verið félagsmaður.


5. gr. Aðalfund félagsins skal halda í byrjun hvers árs. Er hann opinn öllum félagsmönnnum. Skal hann boðaður með minnst einnar viku fyrirvara. Tillögur til lagabreytinga skal kynna í fundarboði.


6. gr. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

  1. Skýrsla fráfarandi stjórnar og reikningar
  2. Lagabreytingar
  3. Kosning stjórnar og tveggja endurskoðenda
  4. Ákvörðun félagsgjalds
  5. Starfið framundan og önnur mál


7. gr. Stjórn félagsins skal skipuð sjö félagsmönnum og að auki skal kjósa tvo til fjóra varamenn. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum.


8. gr. Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi.


Lög samþykkt á stofnfundinum 29. nóv. 1987 með breytingum á aðalfundum félagsins 15. feb. 2004 og 21. mars 2007

 

electronic intifada

This webpage uses Javascript to display some content.

Please enable Javascript in your browser and reload this page.

hafðu samband

Félagið Ísland-Palestína
Depluhólar 9, 111 Reykjavík
Sími/Fax: 553 1302
E-mail: palestina@palestina.is

auglýsing



WWW Palestina.is

Google
© Félagið Ísland-Palestína 2007 - palestina@palestina.is